
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í apríl síðastliðnum samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.309 og var upphæð viðskiptanna um 66 milljarðar króna. Þegar apríl 2021 er borinn saman við mars 2021 fækkar kaupsamningum um 29,5% og velta lækkar um 30,3%.…Lesa meira








