Fréttir

true

Meiðsli Skagamanna og rautt spjald í tapleik gegn FH

Skagamenn léku gegn FH í Pepsi Max deildinni í fótbolta í gærkvöldi og byrjuðu leikinn vel því Gísli Laxdal Unnarsson skoraði með góðu skoti eftir sendingu Elias Tamburini strax á 6. mínútu. Skagamenn misstu svo mann út af á 28. mínútu eftir að Hákon Ingi Jónsson fékk tvö gul spjöld á fimm mínútna millibili með…Lesa meira

true

Undirbúa byggingu nýs veiðihúss fyrir Reykjadalsá

Fiskræktar- og veiðifélag Reykjadalsár hefur óskað eftir tilboðum í byggingu á nýju veiðihúsi í Reykholti í Borgarfirði, niður við ána. Veiðifélag á nú gamalt veiðihús í landi Kjalvararstaða í Reykholtsdal. „Gamla húsið er gamall A bústaður sem er kominn til ára sinna,“ segir Hörður Guðmundsson, formaður veiðifélagsins í samtali við Skessuhorn. Nýja húsið á að…Lesa meira

true

Tökur á kvikmynd hefjast í Ólafsvík um mánaðamótin

Á næstunni hefjast upptökur á kvikmyndinni Woman At Sea í Ólafsvík og nágrenni og munu tökur standa yfir í júní og júlí. Kvikmyndin byggir á margverðlaunaðri franskri bók sem fjallar um franska ævintýrakonu sem ákveður að hefja nýtt líf sem sjómaður í karllægum heimi á norðurhjara veraldar. Þar þarf hún að takast á við líkamlegt…Lesa meira

true

Verktakafyrirtækið Þróttur er 75 ára um þessar mundir

Verktakafyrirtækið Þróttur ehf. á Akranesi varð 75 ára 2. maí síðastliðinn. Fyrirtækið er rótgróið og hefur unnið við fjöldann allan af verkum út um allt land. Það hefur verið starfrækt síðan árið 1946 og hefur því fyrir löngu fest sig í sessi. Í samtali við Skessuhorn segir Helgi Ómar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Þróttar að verkefnastaða fyrirtækisins…Lesa meira

true

Vinna að tillögum um bætta þjónustu við aldraða á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi gáfu á síðasta ári út Velferðarstefnu Vesturlands þar sem fjallað var um öll velferðarmál í landshlutanum; heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og þjónustu við fatlaða einstaklinga, starfsendurhæfingu, æskulýðs- og forvarnamál og öldrunarþjónustu. Í kjölfarið var ákveðið að taka eitt mál úr skýrslunni og fara með það lengra, það sem snýr að öldrunarmálum. Var þá…Lesa meira

true

Síðustu forvöð að sækja um stuðningslán

Smærri rekstraraðilum sem glíma við tekjusamdrátt vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hefur staðið til boða að sækja um stuðningslán með ábyrgð ríkissjóðs. Lánin má veita til 31. maí nk. „Nokkurn tíma getur tekið að afgreiða umsóknir en ekki verða veitt stuðningslán eftir lok þessa mánaðar þótt umsókn hafi borist fyrr. Rekstraraðilum, sem hyggjast sækja um stuðningslán, er…Lesa meira

true

Afar góð verkefnastaða hjá Borgarverki

Útlit er fyrir gott sumar hjá Borgarverki ehf. að sögn Óskars Sigvaldasonar framkvæmdastjóra. Hann segir verkefnastöðuna gífurlega góða. Borgarverk er nú að vinna að tveimur stórum gatnagerðarverkefnum á Selfossi auk þess sem fyrirtækið er nú langt komið með framkvæmdir við nýjan sjóvarnargarð og vegaframkvæmdir við Faxabraut á Akranesi. „Svo erum við með mörg önnur verk…Lesa meira

true

Ísland í fararbroddi í nýtingu ljósleiðara í Evrópu

Ísland heldur toppsæti sínu sem það Evrópuland þar sem hæst hlutfall heimila nýtir sér ljósleiðaratengingu til að uppfylla gagnaflutningsþörf heimilisins. Þetta var kynnt á fundi í hádeginu í dag þar sem Fibre to the Home Council Europe kynnti stöðuna í álfunni miðað við september síðastliðinn. Í skýrslunni sem tekur mið af stöðunni í september 2020…Lesa meira

true

Auglýst eftir presti í Garða- og Saurbæjarprestakalli

Biskup Íslands auglýsir á vef sínum eftir presti til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestakalli og rennur umsóknarfrestur út á miðnætti 25. maí 2021. Prestar Garða- og Saurbæjarprestakalls eru sem stendur tveir, Þráinn Haraldsson sóknarprestur, og Þóra Björg Sigurðardóttir en Jónína Ólafsdóttir lét nýlega af störfum eftir að hún var ráðin sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. Garða- og…Lesa meira

true

Landnámssetrið opnað að nýju eftir átta mánaða lokun

Á morgun, uppstigningardag 13. maí, verður Landnámssetrið í Borgarnesi opnað að nýju eftir að hafa verið lokað frá því síðasta haust. Landnámssetrið var opnað fyrst 13. maí 2006 og er þetta því 15 ára afmæli fyrirtækisins. Af því tilefni verður boðið upp á vöfflur, kaffi og heitt kakó frá klukkan 14-16. Um kvöldið verður veitingastaðurinn…Lesa meira