Fréttir

true

Tók þátt í undankeppni fyrir heimsleikana í Crossfit

Ingvar Svavarsson á Akranesi keppti um helgina í undankeppni fyrir heimsleikana í Crossfit sem verða haldnir í Bandaríkjunum í ágúst á þessu ári. Ingvar keppti í 35-39 ára aldursflokki en alls tóku þrír þátt í þessum flokki hér á landi. Til þess að komast í þessa undankeppni þarf að vera með bestan árangur sem 10%…Lesa meira

true

Elkem býður á leiki kvennaliðs ÍA

Elkem og Knattspyrnufélag ÍA hafa gert þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér styrk við kvennaknattspyrnuna á Akranesi. Í samningum felst að Elkem býður öllum á leiki ÍA á Akranesvelli í sumar í Lengjudeild kvenna og eru bæjarbúar hvattir til að taka boðinu og fjölmenna á leikina í sumar. Fyrsti heimaleikur ÍA er einmitt í…Lesa meira

true

Hættustigi almannavarna lýst yfir vegna þurrka

Í hádeginu í dag ákvað Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi að lýsa yfir hættustigi almannavarna. „Svæðið sem um er að ræða nær frá Breiðafirði að Eyjafjöllum. Þessi ákvörðun er byggð á því að undanfarið hefur lítið rignt þessu svæði og veðurspá næstu daga sýnir ekki neina…Lesa meira

true

Snæfell dregur sig úr keppni í 4. deild

Knattspyrnulið Snæfells, sem ætlaði að taka þátt í A-riðli 4. deildar karla, hefur skráð sig úr keppni á Íslandsmótinu. Erfiðlega hefur gengið að manna liðið í Stykkishólmi og er helsta ástæðan sú að annað lið af Snæfellsnesi, Reynir Hellissandi, tekur þátt í fyrsta skipti í sumar í fjórðu deildinni og hafa margir leikmenn Snæfells gengið…Lesa meira

true

Birta framboðslista Samfylkingarinnar

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september var samþykktur á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar 10. maí sl. Áður hafði verið kosið í þrjú efstu sætin á auknu kjördæmaþingi 27. mars en uppstillinganefnd sá um að stilla upp á listann frá fjórða sæti. Hér má sjá listann í heild sinni: Nr. 1 Valgarður Lyngdal Jónsson –…Lesa meira

true

Sindratorfæran á Hellu fór fram á laugardaginn

Sindratorfæran á Hellu fór fram á laugardaginn og hófu 18 keppendur keppni í tveimur flokkum. Keppnin var æsispennandi og var í beinni útsendingu á motorsport.is. Um 3000 manns fylgdust með streyminu í Skjáskoti sem sá um að koma öllu heim í stofu til þeirra sem fylgdust með. Strax í fyrstu braut voru það þeir Ólafur…Lesa meira

true

Með sjaldgæfan blóðtappa

Skagamaðurinn Oliver Stefánsson, sonur Stefáns Þórs Þórðarsonar og Magneu Guðlaugsdóttur, og varnarmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Norrköping, verður frá næsta hálfa árið hið minnsta eftir að hafa fengið blóðtappa fyrir neðan háls. Oliver, sem er 18 ára gamall, hefur verið mjög óheppinn með meiðsli frá því hann kom til Íslendingafélagsins seint á árinu 2018 en Ísak Bergmann…Lesa meira

true

Baldur dró vélarvana bát til Akraness

Sjómælingaskip Landhelgisgæslunnar, Baldur, dró Kvist KÓ-30, rúmlega fimm brúttótonna fiskibát, til hafnar á Akranesi síðdegis í gær. Samkvæmt heimildum Skessuhorns varð báturinn vélarvana og dó á öllum tækjum þegar hann var staddur um sjö sjómílur vestur af Þormóðsskeri en báturinn var á leið á Arnarstapa. Einn maður var um borð í bátnum og sakaði hann…Lesa meira

true

Skaginn 3X smíðar nýtt uppsjávarvinnslukerfi fyrir Loðnuvinnsluna

Skaginn 3X hefur undirritað samning um smíði nýs uppsjávarvinnslukerfis fyrir starfsemi Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Það mun auka sjálfvirkni og vinnslugetu Loðnuvinnslunnar en stefnt er að því að auka afköst vinnslunnar í allt að 400 tonn á sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. „Nýja kerfið er hannað til að framleiða hágæða…Lesa meira

true

Dósamóttakan opnar á ný á Akranesi

Dósamóttaka Fjöliðjunnar á Smiðjuvöllum á Akranesi hefur nú verið opnuð aftur eftir nokkurra vikna lokun vegna sóttvarna. Opnunartími er alla virka daga frá kl. 08.00-11.45 og 13.00-15.30. Viðskiptavinum er bent á að virða grímuskyldu og fjarlægðartakmörk ásamt því að sýna biðlund því búast má við töluverðri örtröð næstu dagana.Lesa meira