
Fyrsti heimaleikur Skagamanna á þessu tímabili í Pepsi Max deild karla verður í kvöld á Akranesvelli og hefst kl. 19.15. Víkingur Reykjavík eru mótherjar Skagamanna en í fyrstu umferðinni unnu þeir Keflvíkinga 1-0 á meðan Skagamenn töpuðu fyrir Valsmönnum 2-0. Einungis mega 200 manns mæta á leikinn sökum sóttvarnareglna og verða þeir í merktum sætum…Lesa meira








