Fréttir

true

Óvissustigi almannavarna verður lýst yfir vegna þurrka

Mjög þurrt og sólríkt veður hefur einkennt veðráttuna síðan um miðjan apríl. Samhliða því stóreykst hættan á gróðureldum. Slíkir eldar hafa undanfarna daga verið í Heiðmörk og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Vegna þurrka á öllu suðvesturhorni landsins hefur verið ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. Slökkviliðsmenn hér á Vesturlandi hafa nú verið…Lesa meira

true

Fyrsti leikur Víkings Ó í kvöld

Víkingur Ólafsvík spilar fyrsta leik sinn í Lengjudeildinni í knattspyrnu karla í kvöld. Mótherjar þeirra eru Fram úr Reykjavík og hefst leikurinn kl. 19.15 á Framvelli í Safamýrinni. Víkingur mætir til leiks með nýjan þjálfara í brúnni, Gunnar Einarsson, og sagði hann í viðtali við Skessuhorn sem kom út í gær að Ólafsvík væri lítið…Lesa meira

true

RÚV sýnir bikarkeppni í knattspyrnu frá sumrinu 2022

Knattspyrnusamband Íslands hefur gert samning við RÚV um útsendingarétt frá bikarkeppni KSÍ frá árinu 2022 til og með 2026. Nú er Stöð2 Sport með sýningarréttinn. „KSÍ og Íslenskur toppfótboli, ÍTF, óskuðu í síðasta mánuði eftir tilboðum í útsendingaréttindi tveggja efstu deilda Íslandsmóts karla og kvenna sem og Bikarkeppni beggja kynja. Fjölmargir aðilar, innlendir og erlendir,…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu í Kópavoginum

Lánlausar Skallagrímsstúlkur þurftu að sætta sig við þriðja tapleikinn í röð þegar þær heimsóttu Breiðablik í Smáranum í Kópavogi í næstsíðustu umferð Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Jafnt var með liðunum stóran hluta leiksins en það var ekki fyrr en í loka leikhluta að leiðir tóku að skilja. Heimastúlkur voru hreinlega hungraðari fyrir…Lesa meira

true

Rósa ein á báti í karlaveldi

Rósa Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði, er eina konan í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en kosið var í stjórn SFS á aðalfundi þann 30. apríl síðastliðinn. Alls var 19 manna stjórn kosin og þar af eru 18 karlar. Þar má finna til dæmis Daða Hjálmarsson, útgerðarstjóra KG Fiskverkunar á Hellissandi, Rögnvald Ólafsson,…Lesa meira

true

Ætlar að bjóða upp á fjölbreytt helgihald sem höfðar til allra

Eins og greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku hefur Hildur Björk Hörpudóttir verið kjörin nýr sóknarprestur í Reykholts- og Hvanneyrarprestakalli. Prestakallinu tilheyra sex sóknir, Bæjarsókn, Fitjasókn, Hvanneyrarsókn, Lundarsókn, Reykholtssókn og Síðumúlasókn. Hildur Björk er fædd og uppalin í Reykjavík en hún á einnig tengingu á landsbyggðina, nánar tiltekið í Bæjarsveit í Borgarfirði. Þar…Lesa meira

true

Úrslitakeppni fyrstu deildar í körfu hefst á morgun

Úrslitakeppni fyrstu deildar karla í körfuknattleik hefst á morgun, föstudag. Deildarkeppnin kláraðist í vikunni þar sem Breiðablik tryggði sér efsta sætið og farseðil beinustu leið í úrvalsdeildina. Kópavogsliðið getur því farið í langþráð sumarfrí. Aftur á móti fá hin liðin í deildinni að berjast um hinn farseðilinn upp í efstu deild en tvö lið fara…Lesa meira

true

Vill fá tilfinningu fyrir því hvernig hjartað slær á hverjum stað

Helgina 23.-25. apríl fór fram forval hjá Vinstri hreyfingunni grænu framboði í Norðvesturkjördæmi. Þar var valið í fimm efstu sæti á framboðslista fyrir alþingiskosningarnar næsta haust. Bjarni Jónsson sigraði í forvalinu og mun því leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi. Í öðru sæti hafnaði Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingiskona, og þriðja sætið tók Sigríður Gísladóttir. Bjarni Jónsson…Lesa meira

true

Fólksbílastöðin horfin af sjónarsviðinu

Fólksbílastöðin, eða „Fóló“ eins og hún hefur jafnan verið kölluð af Skagamönnum, var rifin núna upp úr hádeginu í dag. Húsið sem stóð við Kirkjubraut 39 var tekið í notkun á sjötta áratugnum og var vinsæl sjoppa á rúntinum um árabil. Einnig var hún vinsæl á níunda áratugnum sem viðkomustaður krakka í Brekkubæjarskóla í frímínútum…Lesa meira

true

Kynntu umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland

Landnýting, loftslagsmál og umhverfisvernd, nýsköpun og tækni eru þrjár lykilbreytur sem munu marka landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til framtíðar. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð í dag fyrir fjarfundi þar sem kynnt var Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Meginþættir landbúnaðarstefnu framtíðarinnar eru að treysta fæðuöryggi, tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra landnýtingu, auka verðmætasköpun og…Lesa meira