Fréttir

true

Reykur gæti sést áfram frá Fíflholtum

Hrefna B Jónsdóttir framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands sendi síðdegis í dag frá sér fréttatilkynningu vegna brunans sem varð á sorpurðunarsvæðinu í Fíflholtum í gær og fram á morgun. „Reikna má með að reykur stígi upp af svæðinu eitthvað áfram því ef opna þarf hauginn þá er hitinn það mikill að það mun sjást utan frá. Er…Lesa meira

true

Velferðarvaktin hvetur sveitarfélög að útvega nemendum frí ritföng

Siv Friðleifsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún hvetur sveitarstjórnir, skólanefndir, skólaskrifstofur og skólastjóra til að leggja kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa barna af eða halda henni í lágmarki. Velferðarvaktin starfar innan velferðarráðuneytisins og var stofnuð snemma árs 2009 til þess að fylgjast með afleiðingum efnahagshrunsins á heimilin í landinu. Velferðarvaktin hefur…Lesa meira

true

Borgarbyggð himinlifandi með vel heppnað Unglingalandsmót

Unglingalandsmót UMFÍ fór fram dagana 28.- 31. júlí í Borgarnesi, eins og ítarlega hefur verið fjallað um í Skessuhorni. Heppnaðist mótið mjög vel og virtust allir vera ánægðir með það. Byggðarráð Borgarbyggðar lýsti yfir ánægju sinni með vel heppnað mót í yfirlýsingu og segir að samstarf Borgarbyggðar við UMFÍ og UMSB við undirbúning og framkvæmd…Lesa meira

true

Kvikmyndahátíðin Northern Wave færð um set

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í níunda sinn dagana 21.-23. október í haust. Hátíðin hefur fram að þessu verið haldin í Grundarfirði en í ár mun hún verða færð um set og haldin í Frystiklefanum í Rifi. Dögg Mósesdóttir, stofnandi og stjórnandi hátíðarinnar, segir ástæðuna fyrir því að hátíðin fari nú í Rif vera…Lesa meira

true

Faxagleði fór fram á Stóra-Kroppi

Faxagleði, firmakeppni hestamannafélagsins Faxa í Borgarfirði, var haldin á Stóra-Kroppi í Reykholtsdal laugardaginn 6. ágúst í einmuna veðurblíðu. Þetta var í þriðja skipti sem keppnin er haldin á þessum stað og hefur hún vaxið með hverju árinu. Þátttaka var með ágætum. Firmakeppni var í flokkum polla, barna, unglinga, kvenna og karla auk kappreiða með frekar…Lesa meira

true

Mestu eldar frá upphafi á urðunarstaðnum í Fíflholtum

Eldur kom upp á urðunarstað Sorpurðunar Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum í fyrrinótt en hans varð vart klukkan 7:45 í gærmorgun. Að sögn Þorsteins Eyþórssonar staðarhaldara er ekki óalgengt að sjálfsíkveikja verði á urðunarstöðum, þegar nær að hitna í haugunum áður en þeir eru urðaðir. Er þá iðulega gripið til þess ráðs að kæfa eldinn…Lesa meira

true

Hreppslaugarhlaup fer fram á morgun

Hið árlega Hreppslaugarhlaup Ungmennafélagsins Íslendings í Borgarfirði verður haldið á morgun, fimmtudaginn 11. ágúst. Hlaupið verður ræst klukkan 18:00 við Hreppslaug í Skorradal. Fram kemur á upplýsingasíðu mótsins að eftir hlaup verði boðið í sund í hina gömlu og margrómuðu Hreppslaug. Hægt verður að kaupa léttar veitingar á sundlaugarbakkanum. Hlaupnar verða þrjár vegalengdir í hlaupinu;…Lesa meira

true

Arndís ráðin launafulltrúi Borgarbyggðar

Nýverið auglýsti sveitarfélagið Borgarbyggð starf launafulltrúa laust til umsóknar, eftir að Ingibjörg Ingimarsdóttir hafði ákveðið að láta af störfum í haust. Níu umsóknir bárust um starfið. Ákveðið var að ráða Arndísi Guðmundsdóttur á Bjarnastöðum í Hvítársíðu. Hún er verslunarstjóri og bóndi en hefur áður m.a. sinnt starfi innheimtufulltrúa Borgarbyggðar.Lesa meira

true

Brauðgerð Ólafsvíkur fær nýtt útlit

Skipt var um glugga og gler í Brauðgerð Ólafsvíkur nú í sumar og um leið fékk bakaríið örlítið breytt útlit. Settar voru skemmtilegar filmur með gömlum ljósmyndum á nýja glerið. „Okkur þótti þetta ágætis hugmynd og lögðumst í smá grúsk til að finna réttu myndirnar. Þessar heilluðu okkur, höfðum því samband við eigendur þeirra og…Lesa meira

true

Þrír leikmenn framlengja samninga við meistaraflokk ÍA

Þeir Albert Hafsteinsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson og Þórður Þorsteinn Þórðarson hafa allir framlengt samninga sína við ÍA út leiktímabilið 2018.  Þessir ungu leikmenn hafa sýnt það og sannað að þeir eru tilbúnir í að spila í efstu deild og eiga framtíðina fyrir sér. „Það er mikið ánægjuefni að búið sé að framlengja samninga við þessa…Lesa meira