Fréttir

true

Sjósundsskýli reist og tekið í notkun í Stykkishólmi

Stykkishólmsbær greinir frá því á vef sínum að tímabundið skýli fyrir sjósundskappa, til að hafa fataskipti í, hafi verið reist við Móvík og jafnframt að stigi með handriði hafi verið lagður niður í fjöruna. Jafnframt segir að bænum hafi borist ábending frá íbúa þar sem athygli hafi verið vakin á því að hópur fólks í…Lesa meira

true

Skagamenn ferðast umhverfis jörðina

Bæjarstjórn Akraness samþykkti árið 2019 að innleiða verkefnið Heilsueflandi samfélag í samstarfi við embætti Landlæknis og Íþróttabandalag Akraness. Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélagið á Akranesi við að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Markmið Heilsueflandi samfélags á Akranesi eru einnig að sveitarfélagið verði sjálfbærara, skilvirkara…Lesa meira

true

LausnaVer mun þjálfa vestfirska leiðtoga framtíðarinnar

„Á Vestfjörðum eru tækifærin fleiri en íbúarnir,“ segir í tilkynningu frá vestfirskum aðilum í nýsköpun. „Svæðið er ríkt af náttúruauðlindum, náttúran er allt umlykjandi og hér má finna samheldni og einstaka hlýju sem ríkir á milli fólks. Tækifærin bíða hreinlega eftir því að við grípum þau og nýtum til uppbyggingar kröftugs samfélags og atvinnulífs á…Lesa meira

true

Fjörleg fasteignaviðskipti

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í mars 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.648 og var upphæð viðskiptanna um 85 milljarðar króna. Þegar mars 2021 er borinn saman við mánuðinn á undan fjölgar kaupsamningum um 25,2% og velta eykst um…Lesa meira

true

Leit að fullorðnum manni bar árangur í gærkvöldi

Björgunarsveitir á svæði 4 hjá Landsbjörgu; frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði, voru um kvöldmatarleytið í gær kallaðar út til leitar að karlmanni á áttræðisaldri. Ættingjar höfðu saknað mannsins í tvo daga og hafið eftirgrennslan ásamt lögreglu höfuðborgarsvæðisins og á Vesturlandi en án árangurs. Einnig var leitað úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærdag. Hátt í 80 björgunarsveitarmenn…Lesa meira

true

Hefðbundin vorverk vegagerðarfólks

Vorverkin eru hafin hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar á Snæfellsnesi, eins og annarsstaðar. Nýttu þeir góðviðrisdag í síðustu viku til að fylla í holur í malbikinu. Þetta eru kannski ekki einungis vorverk enda hafa þeir farið reglulega til að fylla í holur í vetur þar sem veturinn hefur verið óvenju mildur þetta árið. Það má segja að…Lesa meira

true

Góð aflabrögð frá höfnum Snæfellsbæjar eftir hrygningarstoppið

Aflabrögð hafa verið mjög góð í Snæfellsbæ eftir að hrygningarstoppinu lauk 21. apríl síðastliðinn. Að sögn Kristjáns Sæbjörnssonar, hafnarvarðar í Rifi, hafa aflabrögð verið mjög góð og nefndi hann að dragnótarbáturinn Esjar SH hafi landað tvisvar á dag nokkra daga og á sunnudag var hafi aflinn yfir daginn verið 32 tonn í tveimur löndunum. Netabáturinn…Lesa meira

true

Þórður ráðinn yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE

Nýverið auglýsti Heilbrigðisstofnun Vesturlands laust til umsóknar starf yfirmanns sjúkraflutninga hjá stofnuninni. Gísli Björnsson hefur gegnt starfinu frá því HVE varð til við sameiningu átta heilbrigðisstofnana árið 2010 en lætur nú af störfum. Sjö umsóknir bárust um starfið og var ákveðið að ráða Þórð Guðnason á Akranesi. Byrjar hann störf 13. júní næstkomandi. Margar starfsstöðvar…Lesa meira

true

Kvartað yfir þungaflutningum og símanotkun bílstjóra

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi hefur verið talsvert um kvartanir vegna efnisflutninga í og við ný íbúðahverfi á Akranesi. Kvartanirnar hafa meðal annars lotið að símanotkun við akstur vörubíla auk hraðaksturs. Hefur kveðið svo rammt að þessum kvörtunum að bæjaryfirvöld höfðu nýverið samband við lögreglu. Lögregla hefur í kjölfarið haft samband við verktaka á svæðinu…Lesa meira

true

Plokkað í góða veðrinu

Víða um land var Plokkdagurinn haldinn um liðna helgi. Ungir sem aldnir héldu þá út í góða veðrið á gönguskónum vopnaðir pokum, ruslaklemmum og góða skapinu til að hreinsa upp rusl sem einhver hafði „gleymt“ í náttúrunni. Meðal þeirra voru félagar í Hollvinasamtökum Borgarness. Þeir komu saman á laugardagsmorgni í frábæru veðri, logni og hlýju,…Lesa meira