Fréttir

true

Fjörleg fasteignaviðskipti

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í mars 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.648 og var upphæð viðskiptanna um 85 milljarðar króna. Þegar mars 2021 er borinn saman við mánuðinn á undan fjölgar kaupsamningum um 25,2% og velta eykst um…Lesa meira

true

Leit að fullorðnum manni bar árangur í gærkvöldi

Björgunarsveitir á svæði 4 hjá Landsbjörgu; frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði, voru um kvöldmatarleytið í gær kallaðar út til leitar að karlmanni á áttræðisaldri. Ættingjar höfðu saknað mannsins í tvo daga og hafið eftirgrennslan ásamt lögreglu höfuðborgarsvæðisins og á Vesturlandi en án árangurs. Einnig var leitað úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærdag. Hátt í 80 björgunarsveitarmenn…Lesa meira

true

Hefðbundin vorverk vegagerðarfólks

Vorverkin eru hafin hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar á Snæfellsnesi, eins og annarsstaðar. Nýttu þeir góðviðrisdag í síðustu viku til að fylla í holur í malbikinu. Þetta eru kannski ekki einungis vorverk enda hafa þeir farið reglulega til að fylla í holur í vetur þar sem veturinn hefur verið óvenju mildur þetta árið. Það má segja að…Lesa meira

true

Góð aflabrögð frá höfnum Snæfellsbæjar eftir hrygningarstoppið

Aflabrögð hafa verið mjög góð í Snæfellsbæ eftir að hrygningarstoppinu lauk 21. apríl síðastliðinn. Að sögn Kristjáns Sæbjörnssonar, hafnarvarðar í Rifi, hafa aflabrögð verið mjög góð og nefndi hann að dragnótarbáturinn Esjar SH hafi landað tvisvar á dag nokkra daga og á sunnudag var hafi aflinn yfir daginn verið 32 tonn í tveimur löndunum. Netabáturinn…Lesa meira

true

Þórður ráðinn yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE

Nýverið auglýsti Heilbrigðisstofnun Vesturlands laust til umsóknar starf yfirmanns sjúkraflutninga hjá stofnuninni. Gísli Björnsson hefur gegnt starfinu frá því HVE varð til við sameiningu átta heilbrigðisstofnana árið 2010 en lætur nú af störfum. Sjö umsóknir bárust um starfið og var ákveðið að ráða Þórð Guðnason á Akranesi. Byrjar hann störf 13. júní næstkomandi. Margar starfsstöðvar…Lesa meira

true

Kvartað yfir þungaflutningum og símanotkun bílstjóra

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi hefur verið talsvert um kvartanir vegna efnisflutninga í og við ný íbúðahverfi á Akranesi. Kvartanirnar hafa meðal annars lotið að símanotkun við akstur vörubíla auk hraðaksturs. Hefur kveðið svo rammt að þessum kvörtunum að bæjaryfirvöld höfðu nýverið samband við lögreglu. Lögregla hefur í kjölfarið haft samband við verktaka á svæðinu…Lesa meira

true

Plokkað í góða veðrinu

Víða um land var Plokkdagurinn haldinn um liðna helgi. Ungir sem aldnir héldu þá út í góða veðrið á gönguskónum vopnaðir pokum, ruslaklemmum og góða skapinu til að hreinsa upp rusl sem einhver hafði „gleymt“ í náttúrunni. Meðal þeirra voru félagar í Hollvinasamtökum Borgarness. Þeir komu saman á laugardagsmorgni í frábæru veðri, logni og hlýju,…Lesa meira

true

Sigurborg SH 12 landaði fullfermi

Sigurborg SH 12 lagðist að bryggju í Grundarfirði síðasta mánudagsmorgun í blíðskaparveðri. Skipið kom með 90 tonn af blönduðum afla og hófust skipverjar strax handa við að hífa fenginn upp á bryggju. Heiðskýrt og milt veður lék við skipverja sem voru hinir kátustu. Fleiri myndir frá lönduninni eru í Skessuhorni sem kom út í dag.Lesa meira

true

Keyptu einungis hluta húsnæðis

Í frétt hér á vefnum nýverið var sagt frá kaupum Dalabyggðar á fyrrum húsnæði sýsluskrifstofunnar í Búðardal af Fasteignum ríksins. Dalabyggð er einungis að kaupa hluta af eignarhluta Fasteigna ríkisins, eða 95,8 m2 en ekki 238,4 m2. Restin, þar sem t.d. lögreglan er með aðstöðu, verður áfram í eigu ríkisins. Þetta leiðréttist hér með og…Lesa meira

true

Stór bólusetningardagur á Akranesi

Um 900 manns voru boðaðir til bólusetningar í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum á Akranesi í dag. Fá þeir bóluefni frá Pfizer. Er þetta mesti fjöldi á einum degi fram að þessu. Framundan eru svo fleiri stórir bólusetningardagar. Bólusetningin í dag gekk smurt fyrir sig. Fólk framvísaði strikamerki sem það hefur áður fengið sent frá Heilsuveru, hjúkrunarfræðingur…Lesa meira