Fréttir

true

Sjávarlíf er einstakur ljósmyndavefur úr undirdjúpunum

Erlendur Bogason kafari hefur um langt árabil safnað myndum af sjávarlífverum og hafsbotni. Myndir hans hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vefnum sjavarlif.is en þær hafa allar verið teknar neðansjávar við Íslandsstrendur. Í kynningu á verkefninu segir að efnið á vefnum muni nýtast við rannsóknir og fræðslu fyrir sjávarútveg og almenning. Myndefnið flokkast í nokkra…Lesa meira

true

Björgunarsveitir leita manns í Hnappadal

Stór hópur björgunarsveitafólks er nú á leið vestur í Hnappadal á Snæfellsnesi til leitar að týndum manni. Hans er saknað eftir að hafa ekki skilað sér úr fjallgöngu á Heydal. Björgunarsveitir á Vesturlandi voru snemma í kvöld kallaðar út til leitar en auk þeirra er væntanlegur mannskapur allt frá Blönduósi í norðri, af höfuðborgarsvæðinu og…Lesa meira

true

Breytingar á rekstri almenningssamgangna á Vesturlandi

Nú um áramótin munu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) láta af umsjón með almenningssamgöngum og tekur Vegagerðin hana yfir frá og með 1. janúar nk, eins og fram kom í annarri frétt hér á vefnum í morgun.  „SSV tók þetta verkefni yfir árið 2012, líkt og önnur landshlutasamtök sveitarfélaga. Samningar um verkefnið runnu út í…Lesa meira

true

Þrátt fyrir gjaldskrárhækkun er sorpurðun ódýr á Vesturlandi

Á fundi stjórnar Sorpurðunar Vesturlands 11. desember síðastliðinn var samþykkt að hækka gjaldskrá fyrir sorpurðun frá og með áramótum. Jafnframt voru samþykktar veigamiklar breytingar sem fela í sér fjölgun gjaldskrárflokka eftir tegundum flokkaðs úrgangs. Eftir þá breytingu verða 18 gjaldflokkar fyrir sorp í Fíflholtum. Lægst er innheimt fyrir spæni og kurlað timburð 3 krónur fyrir…Lesa meira

true

Þrjár framlengja við ÍA

Knattspyrnukonurnar Erla Karitas Jóhannesdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir og María Björk Ómarsdóttir endurnýjuðu samninga sína við ÍA skömmu fyrir jól. Allar eru þær fæddar árið 2002 og skrifuðu undir samning sem gildir út keppnistímabilið 2021. Erla Karitas hefur leikið 35 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim fimm mörk. Sigrún Eva á að baki 46 leiki…Lesa meira

true

Brattir í morgunsárið á stærsta flugeldasöludeginum

Þeir voru hressir í morgun félagarnir Einar Örn Einarsson og Arnar Grétarsson þegar þeir stóðu vaktina í sameiginlegri flugeldasölu Björgunarsveitanna Brákar og Heiðars í Brákarey í Borgarnesi. Blaðamaður Skessuhorns hitti þessa hressu formenn að máli í upphafi stærsta einstaka söludags flugelda björgunarsveitanna. Þeir Einar og Arnar segjast ætla að verða með opið til klukkan 22…Lesa meira

true

Ofsahræðsla dýra vegna flugelda

Nú þegar áramót eru framundan er vert að minna á að þessi tími árs er alls ekki í sérlegu uppáhaldi hjá skepnum. Í ítarlegri tilkynningu sem Matvælastofnun hefur sent frá sér eru dýraeigendur hvattir til að huga vel að dýrum sínum á meðan á flugeldaskotum stendur. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta…Lesa meira

true

Hlaupið frá gamla árinu á morgun

Hið árlega gamlársdagshlaup ÍA fer fram á Akranesi á morgun, 31. desember. Hlaupið verður af stað frá Akratorgi kl. 13:00 og hægt er að velja um tvær vegalengdir að þessu sinni; 2 km og 5 km. Sú hefð hefur skapast í tengslum við hlaupið að hlaupararnir klæðast margir hverjir skrautlegum og skemmtilegum búningum. Undirstrikar það…Lesa meira

true

Stofnvísitala þorsks er nú svipuð og 2012

„Stofnvísitala þorsks hefur lækkað töluvert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haustmælingarinnar og er nú svipuð því sem hún var árið 2012. Stofnvísitölur ýsu og ufsa lækkuðu frá fyrra ári eftir að hafa farið hækkandi frá 2014. Vísitölur gullkarfa, skarkola og löngu eru háar miðað við árin fyrir aldamót. Vísitölur djúpkarfa,…Lesa meira

true

Le Boreal er væntanlegt tvisvar sinnum í sumar

Skemmtiferðaskipið Le Boreal er væntanlegt til Akraness á komandi sumri. Tvær komur skipsins hafa verið bókaðar, annars vegar 30. júlí og hins vegar 13. ágúst. Skipið er gert út af franska fyrirtækinu Pontant, en það hefur alls fimm skemmtiferðaskip í sínum flota. Skipið var smíðað árið 2010, er 142 metrar á lengd, 18 metrar á…Lesa meira