Fréttir

true

Andlát – Vilhjálmur Einarsson skólameistari

Vilhjálmur Einarsson fyrrum skólameistari og íþróttakappi lést á Landspítalanum í Reykjavík í gær, 85 ára að aldri. Vilhjálmur var einn fremsti þrístökkvari í heimi á árunum 1956-1962. Frægasta afrek sitt vann Vilhjálmur þegar hann vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956 og var um leið fyrstur Íslendinga til að komast á…Lesa meira

true

Flugeldasala björgunarsveitanna að hefjast

Björgunarsveitir á Vesturlandi reiða sig á sölu flugelda fyrir áramót til að fjármagna starfsemi sína. Nú er sala þeirra ýmist farin af stað eða hefst á morgun, mánudag. Hjá Björgunarfélagi Akraness fer salan sem fyrr fram í húsnæði sveitarinnar við Kalmansvelli 2. Þau Björn Guðmundsson og Birna Björnsdóttir stóðu vaktina þegar ljósmyndari Skessuhorns leit þar…Lesa meira

true

Kjöri íþróttamanns Akraness lýst á þrettándanum

Mánudaginn 6. janúar næstkomandi verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akraness árið 2019. Athöfnin fer sem fyrr fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að lokinni þrettándabrennu. Rafrænni kosningu um kjörið lýkur í dag. Valið fer fram með þeim hætti að 9 manna nefnd greiðir atkvæði í kjörinu en auk þeirra er eitt atkvæði sem valið er…Lesa meira

true

Fögnuður þegar Bárður SH kom til heimahafnar

Stærsti trefjaplastbátur landsins; Bárður SH, kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Ólafsvík á Þorláksmessu. Tók fjöldi manns á móti bátnum og áhöfn hans og þeyttu meðal annars bílflautur þegar siglt var inn til hafnar. Var almenningi boðið að skoða bátinn og þiggja veitingar um borð. Að sögn Péturs Péturssonar skipstjóra og útgerðarmanns var fyrirhugað…Lesa meira

true

Júlían er Íþróttamaður ársins 2019

Júlían J.K. Jóhannsson kraftlyftingamaður var í gærkvöldi útnefndur Íþróttamaður ársins 2019 af Samtökum íþróttafréttamanna. Martin Hermannsson körfuknattleiksmaður hjá Alba Berlín hafnaði í öðru sæti og knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir varð í þriðja. Júlían hefur haslað sér völl sem einn af sterkustu keppendum heims í +120 kg flokki. Hann vann til bronsverðlauna fyrir samanlagðan árangur á…Lesa meira

true

Stærsti hópur landsmanna fylgjandi flugeldasölu

Stærsti hópur landsmanna sem tekur þátt í könnun Maskínu vill áfram óbreytt fyrirkomulag flugeldasölu hér á landi. Rösklega 37% kýs óbreytt fyrirkomulag á flugeldasölu og er það mun lægra hlutfall en fyrir ári síðan, þegar rösklega 45% kusu þannig. Þetta er þó enn stærsti hópurinn. Tæplega 32% vilja einungis selja til aðila sem eru með…Lesa meira

true

Lýsa vantrausti á sjávarútvegsráðherra vegna reglugerðar um hrognkelsaveiðar

Á hverju ári gefur sjávarútvegsráðherra út reglugerð um veiðar á grásleppu. Á undanförnum árum hefur ekki verið mikil efnisleg breyting á reglum sem gilt hafa um veiðarnar. Föstudaginn 20. desember síðastliðinn voru sett í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um hrognkelsaveiðar fyrir árið 2020. Í henni felst kúvending á þeim reglum sem grásleppusjómenn við Íslandsstrendur…Lesa meira

true

Boða tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra sem felur í sér undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum hætti. Heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra fjármögnun og tímasetningu verkefnisins. Eins og fram kemur í minnisblaði heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnarinnar…Lesa meira

true

Arctic Adventures og Into the Glacier í eina sæng á ný

Arctic Adventures hf. og framtakssjóðurinn Icelandic Tourism Fund I, hafa gert samkomulag um sameiningu Arctric Adventures og Into the Glacier ehf., sem rekur ísgöngin í Langjökli. Ekkert varð af sameiningu fyrirtækjanna í ársbyrjun 2019 en nú sameinast þau á nýjan leik. Um leið kaupir Arctic Adventures hluti framtakssjóðsins í fjórum afþreyingarfyrirtækjum í ferðaþjónustu; Óbyggðasetri Íslands,…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra áfrýjaði ekki héraðsdómi um Arnarvatnsheiði

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns síðla í nóvember, kvað Héraðsdómur Vesturlandi upp úrskurð í máli íslenska ríkisins gegn landeigendum á Arnarvatnsheiði. Ríkið höfðaði málið og beindi kröfu sinni gegn Sjálfseignarstofnun um Arnarvatnsheiði og Geitlandi annars vegar en hins vegar eigendum Kalmanstungu I og II. Gerði ríkið kröfu um að felldur yrði úr gildi…Lesa meira