Fréttir

true

Búist við jákvæðum rekstri

Fjárhagsáætlun Eyja- og Miklaholtshrepps gerir ráð fyrir rúmlega 7,1 milljónar afgangi frá rekstri samstæðu A og B hluta árið 2020. Tekjur sveitarfélagsins eru áætlaðar 171,5 milljónir en gjöld 167,8 milljónir. Áætlað er að fjármatekjur nemi 3,4 milljónum á næsta ári og niðurstaðan verði því jákvæð um 7,1 milljón, sem fyrr segir. Veltufé frá rekstri er…Lesa meira

true

Ítarlegur fréttaannáll ársins í máli og myndum

Árið 2019 var síst eftirbátur annarra ára þegar kemur að fréttum af Vesturlandi, nema síður væri. Í spegli tímans hefur hvert ár sín einkenni. Kannski verður ársins 2019 einkum minnst fyrir að vera sólríkt á Vesturlandi. Flestir glöddust yfir því en áhrif þurrka voru allavegana. Meðal annars viðbúnaðarástand vegna hættu á gróðureldum, vatnsból þornuðu upp,…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns er komið út

Hið árlega Jólablað Skessuhorns kom út í morgun. Blaðið er að þessu sinni 96 síður og stappfullt af efni. Meðal efnis má nefna viðtöl við fjölmarga áhugaverða einstaklinga, fréttaannál ársins, mynda- og jólakrossgátu, kveðjur úr héraði, dagskrá í kirkjum, sagnaritari samtímans tekinn tali, fréttir og fjölmargt fleira. Í blaðinu ættu allir að geta fundið eitthvað…Lesa meira

true

Aðgæsluleysi þegar Særún strandaði

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að aðgæsluleysi við stjórnun farþegabátsins Særúnar hafi orðið þess valdandi að báturinn strandaði á skeri í apríl síðastliðnum. RÚV greinir frá. Mikill viðbúnaður var vegna strandsins í vor, þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og björgunarsveitir frá Stykkishólmi og Rifi héldu á vettvang. Þrír farþegar voru um borð í skipinu þegar það strandaði.…Lesa meira

true

EFLA hefur opnað skrifstofu á Hvanneyri

Verkfræðistofan EFLA hefur opnað skrifstofu á Vesturlandi, nánar til tekið í Hvannahúsinu svokallaða við Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri. Skrifstofan á Hvanneyri var opnuð 1. nóvember síðastliðinn og þar mun Orri Jónsson, verkfræðingur frá Lundi, hafa aðsetur. „Hugmyndin að því að opna starfsstöð í Borgarfirðinum hefur verið að þróast um nokkurt skeið, en Efla hefur ávallt…Lesa meira

true

Pólsk verslun opnuð á Akranesi

Matvöruverslunin Fresh Market var opnuð við Stillholt 16 á Akranesi núna í morgun. Fresh Market er pólsk búð og þar er að finna úrval af matvöru frá Póllandi, allt frá pólskum pylsum og niðursuðuvörum til gosdrykkja og sælgætis, auk hreinlætisvara og dagvara ýmiss konar. Upphaflega stóð til að opna verslunina viku fyrr en ein vörusending…Lesa meira

true

Ríkið geri tafarlausar úrbætur

Í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið í síðustu viku, þegar stór hluti norðanvers landsins varð án rafmagns og fjarskipta, þykir stjórn Byggðastofnunar nauðsynlegt að hvetja ríkisstjórn Íslands til að skerpa á þessum málum í ljósi þess að miklir veikleikar komu fram í mikilvægum öryggisinnviðum landsins og að stór hluti íbúa landsbyggðarinnar býr við mikið…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðdegis í gær, þriðjudaginn 17. desember, brautskráðust við hátíðlega athöfn átta nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust Aleksandra Wasiewicz, Alma Jenný Arnarsdóttir og Dawid Einar Karlsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðist Finnbogi Steinarsson. Af opinni braut til stúdentsbrautar brautskráðust Eva María Sævarsdóttir, Ísak Þórir Ísólfsson Líndal og Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir.…Lesa meira

true

Mælt fyrir fjölmiðlafrumvarpi á Alþingi

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á fjölmiðlalögum á Alþingi 16. desember síðastliðinn. Markmið þess er að efla lýðræðishlutverk fjölmiðla með því að styðja við ritstjórnir fjölmiðla sem miðla fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni. „Með frumvarpinu er leitast við að Ísland skipi sér í hóp hinna Norðurlandanna og fleiri ríkja í…Lesa meira

true

Markmiðið var að bændur biðu eftir Bændablaðinu

Áskell Þórisson ritstjóri lítur yfir farinn veg við blaðamennsku og önnur störf Nýbýlið Ægissíða í Hvalfjarðarsveit lætur ekki mikið yfir sér. Það er byggt á spildu úr landi Másstaða og kúrir húsið í skjóli við mön fjallmegin við Innnesveginn. Þar er kominn myndarlegur trjálundur. Litlar skógarplöntur fá góðan aðbúnað með því að óseldar bækur eru…Lesa meira