Fréttir

true

Jólatónleikar í Tónbergi

Síðastliðinn sunnudag voru haldnir jólatónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Þar stigu þau Rakel Páls, Íris Hólm og Birgir Steinn á svið og sungu öll sín uppáhalds jólalög fyrir nánast fullu húsi. Tónlistarflutningur var í höndum Birgis Þórissonar og Péturs Valgarðs Péturssonar.Lesa meira

true

Víðförulustu háhyrningar sem sögur fara af

Háhyrningar sem sést hafa reglulega í Breiðafirði frá árinu 2014 eru sömu dýrin og að undanförnu hafa haldið sig við höfnina í Genóa á Ítalíu. Það er jafnframt ein lengsta leið háhyrninga sem vitað er til að nokkru sinni hafi verið skráð. „Háhyrningarnir sem um ræðir og sem hafa verið myndaðir við höfnina í Genóa…Lesa meira

true

Lækka hámarkshraða í þéttbýli

Að fengnum tillögum frá Snæfellsbæ hefur Lögreglustjórinn á Vesturlandi ákveðið að hraðamörk í þéttbýli bæjarfélagsins verði 30 km/klst. Er þetta í samræmi við ný umferðarlög sem taka gildi á áramótum, en þar er m.a. kveðið á um að hámarksökuhraða skuli tilgreina í heilum tug, að undanskildum hámarkshraðanum 15 km/klst. Hraðamörk verða óbreytt á Útnesvegi í…Lesa meira

true

Ljósleiðarinn seldur

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 12. desember síðastliðinn að ganga að tilboði Mílu í ljósleiðarakerfi sveitarfélagsins. Tvö tilboð bárust þegar auglýst var eftir þeim, eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni. Annars vegar tilboð Mílu sem hljóðar upp á 83,7 milljónir króna og hins vegar tilboð frá Gagnaveitu Reykjavíkur upp á…Lesa meira

true

Silkiormar til sýnis

Signý Gunnarsdóttir, eigandi Ice-Silk í Grundarfirði, hélt sýningu á silkiormum og öllu tilheyrandi að Borgarbraut 2 í Grundarfirði dagana 15. – 17. desember. Þar var hægt að forvitnast um þessa fallegu maðka og hvernig silki og aðrar vörur eru framleiddar úr púpum og möðkum. Sýningin er mjög fróðleg en kynningin var sett fram á einfaldan…Lesa meira

true

Sjö bítast um brauðin

Sjö umsækjendur voru um tvö störf presta sem auglýst voru nýverið laus til umsóknar í Garða- og Saurbæjarprestakalli. Biskup Íslands auglýsti annars vegar eftir almennum presti og hins vegar eftir presti með áherslu á æskulýðs- og barnastarf og voru umsækjendur beðnir um að tilreina hvoru starfið þeir sæktust eftir eða hvort bæði kæmu til greina.…Lesa meira

true

Framlög til tónlistarnáms utan heimabyggðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2019-2020, á grundvelli 7. gr. reglna frá 31. ágúst 2016. Framlagið byggist á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Framlag á hvern…Lesa meira

true

Flutningi lambhrúta yfir varnarlínu vísað til lögreglu

Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á meintum flutningi fjögurra lambhrúta frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra. Óheimilt er að flytja sauðfé yfir varnarlínur nema í sérstökum undantekningartilfellum að fengnu leyfi stofnunarinnar. „Meintur flutningur uppgötvaðist við eftirlit og hefur flutningsbann verið sett á hrútana,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Árið 2016 sótti viðtakandi hrútanna um leyfi til…Lesa meira

true

Starfsfólk Rarik stóð í ströngu í kjölfar óveðursins

Vinnuflokkar á vegum Rarik hafa síðan um miðja síðustu viku unnið hörðum höndum að viðgerðum á raflínum á Norðurlandi, allt frá því óveðrið gekk yfir á þriðjudag og miðvikudag. Víðtækt rafmagnsleysi var eins og komið hefur fram í fréttum um allt norðanvert landið, en nú um helgina var búið að tengja flesta bæi við rafmagn…Lesa meira

true

Meirihluti bæjarstjórnar fylgir fjárhagsáætlun úr hlaði

Bæjarfulltrúar meirihluta Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórn Akraness lögðu síðastliðinn þriðjudag fram bókun þegar fjárhagsáætlun næsta árs var tekin til síðari umræðu og afgreiðslu. Þar segir að í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 sé gert ráð fyrir að rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs verði jákvæð um 309 milljónir króna og að rekstrarafkoma A- og B-hluta…Lesa meira