Fréttir

true

Flutningi lambhrúta yfir varnarlínu vísað til lögreglu

Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á meintum flutningi fjögurra lambhrúta frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra. Óheimilt er að flytja sauðfé yfir varnarlínur nema í sérstökum undantekningartilfellum að fengnu leyfi stofnunarinnar. „Meintur flutningur uppgötvaðist við eftirlit og hefur flutningsbann verið sett á hrútana,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Árið 2016 sótti viðtakandi hrútanna um leyfi til…Lesa meira

true

Starfsfólk Rarik stóð í ströngu í kjölfar óveðursins

Vinnuflokkar á vegum Rarik hafa síðan um miðja síðustu viku unnið hörðum höndum að viðgerðum á raflínum á Norðurlandi, allt frá því óveðrið gekk yfir á þriðjudag og miðvikudag. Víðtækt rafmagnsleysi var eins og komið hefur fram í fréttum um allt norðanvert landið, en nú um helgina var búið að tengja flesta bæi við rafmagn…Lesa meira

true

Meirihluti bæjarstjórnar fylgir fjárhagsáætlun úr hlaði

Bæjarfulltrúar meirihluta Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórn Akraness lögðu síðastliðinn þriðjudag fram bókun þegar fjárhagsáætlun næsta árs var tekin til síðari umræðu og afgreiðslu. Þar segir að í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 sé gert ráð fyrir að rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs verði jákvæð um 309 milljónir króna og að rekstrarafkoma A- og B-hluta…Lesa meira

true

Skil á efni og auglýsingum í Jólablað

Athygli er vakin á því að efni til birtingar í Jólablaði Skessuhorns þarf að berast fyrir hádegi í dag, mánudaginn 16. desember. Vinnsla blaðsins er nú á lokametrunum, en blaðið verður prentað síðdegis á morgun, þriðjudag, og kemur út miðvikudaginn 18. desember. Jólablaðið verður jaframt síðasta tölublað ársins. Efni sendist á netfangið: skessuhorn@skessuhorn.is en auglýsingar…Lesa meira

true

Grundarfjarðarbær lét útbúa skautasvell

Sú hugmynd kviknaði hjá fulltrúum í íþrótta- og æskulýðsnefnd Grundarfjarðarbæjar í haust, að komið yrði upp skautasvelli innanbæjar í vetur. Hugmyndinni var mjög vel tekið af bæjarstjórn og staðsetning rædd á bæjarstjórnarfundi og í framhaldi af bæjarverkstjóra og bæjarstjóra. Að kvöldi fimmtudagsins síðasta leit út fyrir að veðurspáin væri ansi hentug fyrir slíka aðgerð og…Lesa meira

true

Aðventuhátíð í Stafholtsprestakalli

Í dag kl. 16:00 verður aðventuhátíð í Stafholtskirkju í Borgarfirði sniðin að þátttöku barna, unglinga og fullorðinna. Hátíðin er í umsjá fermingarbarna og unglinga úr Varmalandsskóla. Börn úr elstu bekkjum leikskóla og yngri börn grunnskóla fá hlutverk að ganga með gjafaband kirkjunnar inn að altari undir klukknahljóm hristuhljóðfæra og afhenda gjafir af bandinu síðar. Stúlknakór…Lesa meira

true

Hver er Vestlendingur ársins?

Skessuhorn mun nú sem fyrr standa fyrir vali á Vestlendingi ársins, þeim íbúa landshlutans sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr á árinu og verðskuldar sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2019. Skilyrði er að viðkomandi hafi búsetu á Vesturlandi. Íbúar landshlutans geta sent ábendingar á ritstjórn Skessuhorns um Vestlending ársins á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is eigi síðar en…Lesa meira

true

Tíu sækjast eftir slökkviliðsstjórastöðu

Ellefu umsóknir bárust um starf slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Starfið var auglýst um miðjan nóvember og umsóknarfrestur rann út síðastliðinn þriðjudag. Einn þeirra ellefu sem sóttu um dró umsókn sína til baka. Alls eru því tíu sem sækjast eftir því að gegna starfinu, níu karlar og ein kona. Þeir sem sóttu um eru; Einar…Lesa meira

true

Jákvæður rekstur í kortum Dalabyggðar

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í gær, sem og þriggja ára áætlun fyrir árin 2021 til 2023. Í áætlun næsta árs er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu A og B hluta upp á 21,6 milljónir króna og að rekstrarniðurstaða A hluta verðijákvæð um 37,7 milljónir. „Heildareignir eru áætlaðar rúmur 1,4 milljarðar kr.…Lesa meira

true

Spá afgangi frá rekstri Borgarbyggðar

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar var samþykkt með fimm atkvæðum eftir seinni umræðu í sveitarstjórn í gær, sem og þriggja ára áætlun. Fulltrúar Framsóknarflokks sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um áætlunina í heild sinni. Tekjur A og B hluta eru áætlaðar 4.591 milljónir á næsta ári en rekstrargjöld A og B hluta, án fjármagnsliða, 4.293 milljónir er…Lesa meira