Fréttir

true

Lýst eftir hryssu sem saknað er frá Sólheimatungu

„Þessi eldri hryssa, Þrúður frá Brautarholti, er týnd. Hennar er sárt saknað,“ segir í tilkynningu sem beðið var fyrir að birta hér á síðunni. Hryssan var í landi Sólheimatungu í Borgarfirði og sást síðast fyrir tíu dögum. „Búið er að ganga landið og skoða í skurði en ekki sést tangur né tetur af henni. Ef…Lesa meira

true

Þjóðaröryggisráð í fyrsta skipti kallað saman

Í gær var haldinn sérstakur fundur þjóðaröryggisráðs vegna hinna fordæmalausu aðstæðna sem upp hafa komið í framhaldi af ofsaveðri undanfarna daga. Á fundinum var farið yfir afleiðingar veðursins, stöðu mála og næstu skref. Ljóst er að miklar truflanir og bilanir hafa valdið rafmagnsleysi víða á Norðurlandi. Fjarskipti liggja niðri víða á sama svæði. „Um fordæmalaust…Lesa meira

true

Framlengdur umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa framlengt til næsta mánudags frest til að sækja um styrki í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Um er að ræða styrki til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrki til menningarmála auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála. Fresturinn rennur út á miðnætti mánudaginn 16. desember. Nánar á www.ssv.isLesa meira

true

Tónlistarfélagið færði gjafir

Tónlistarfélag Neshrepps utan Ennis gaf Snæfellsbæ veglega gjöf síðastliðinn föstudag. Tónlistarfélagið færði bænum tvo flygla, sem staðsettir verða í grunn- og tónlistarskólanum á Hellissandi. Bæjarstjóri, aðstoðarskólastjóri grunnskóla og kjörnir fulltrúar tóku á móti hljómþýðum gjöfum tónlistarfélagsins. Bæjarstjóri nýtti tækifærið og þakkaði tónlistarfélaginu kærlega fyrir höfðinglegar gjafir. „Hrósaði hann einnig þeim stórhug sem tónlistarfélagið sýndi með…Lesa meira

true

Hart á hrossum

Matvælastofnun brýnir fyrir hrossaeigendum að koma heyi í útigangshross og huga vel að ástandi þeirra nú þegar rofað hefur til víða um land. „Frosthörkur í kjölfar norðan áhlaups kallar á aukið eftirlit og umhirðu með hrossum á útigangi. Nauðsynlegt getur verið að moka leið að hrossum til að koma til þeirra heyi þar sem skaflar…Lesa meira

true

Stofnunum fækkað um eina

Stofnunum á sviði skatta og tolla fækkar um eina um áramót, en Alþingi samþykkti í síðustu viku lög sem greiða fyrir sameiningu embætta ríkisskattstjóra og tollstjóra. Sameinuð stofnun mun heita „Skatturinn“ og verða leiðandi upplýsingastofnun á sviði skatta- og tollamála. Stofnunum á sviði skatta og tolla hefur talsvert undanfarinn áratug. Árið 2009 voru þær þrettán…Lesa meira

true

Valdís Þóra og Guðmundur Ágúst kylfingar ársins

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur eru kylfingar ársins 2019. Golfsamband Íslands greindi frá vali sínu á fimmtudag. Er þetta í 22. sinn sem tveir kylfingar eru valdir, karl og kona. Valdís hefur þrisvar áður hlotið þessa viðurkenningu en Guðmundi Ágústi hlotnast hún nú í fyrsta sinn. Valdís…Lesa meira

true

Íbúar á Akranesi og Borgarnesi fari sparlega með heita vatnið

Vegna bilanar sem kom upp í Deildartunguæð á þriðjudag er lág birgðastaða í hitaveitutönkum á Akranesi og Grjóteyri í Borgarnesi. Af þeim sökum þurftu Veitur að lækka þrýstinginn á dreifikerfinu. Vegna rafmagnstruflana hjá Landsneti var ekki hægt að dæla í tankana af fullum krafti í gær. „Nú er staðan sú að við þurfum að spara…Lesa meira

true

Höfðu ekki erindi sem erfiði

Skallagrímskonur töpuðu naumlega gegn Keflvíkingum, 69-63, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Eftir að hafa misst Keflavíkurliðið langt fram úr sér í síðari hálfleik náðu Skallagrímskonur að hleypa mikilli spennu í leikinn undir lokin. Því miður dugði það þeim þó ekki til að fá eitthvað…Lesa meira

true

Eltu allan leikinn

Snæfell og Haukar mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Hafnarfirði. Haukar leiddu nánast allan leikinn og þó að Snæfellskonur hafi gert atlögu að þeim í þriðja leikhluta sigruðu Haukar að endingu með 20 stigum, 101-81. Haukakonur náðu undirtökunum snemma leiks. Varnarleikur Snæfellskvenna var ekki upp á marga fiska framan…Lesa meira