Fréttir

true

Snæfellingar sigruðu í Rímnaflæði

Þeir Davíð Svanur Halldórsson og Hjörtur Sigurðsson úr félagsmiðstöðinni Afdrepi í Snæfellsbæ báru sigur úr býtum í Rímnaflæði 2019, rappkeppni unga fólksins með laginu „Leiðinlegir dagar“. Það er Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, sem stendur fyrir keppninni. Í öðru sæti varð Viktor Örn Hjálmarsson úr félagsmiðstöðinni Þrumunni með lagið „Ferillinn“ og í þriðja sæti varð…Lesa meira

true

Blindi lundinn Mundi í aðalhlutverki í nýrri bók

Ævintýri Munda Lunda, Hvuttasveinar og Fleiri Korkusögur eru allt nýjar bækur eftir Borgnesinginn Ásrúnu Magnúsdóttur. Bókin Fleiri Korkusögur er framhald af bókinni Korkusögur sem hún gaf út í fyrra ásamt systur sinni, Sigríði. Nýja bókin kom út í haust og líkt og í fyrri bókinni er aðalpersónan byggð á systurdóttur Ásrúnar: „Hún er algjör prakkarakringla…Lesa meira

true

Er þakklátur Borgfirðingum fyrir gott samstarf og ánægjuleg kynni

Gunnlaugur Auðunn Júlíusson fráfarandi sveitarstjóri í Borgarbyggð kveðst aðspurður í samtali við Skessuhorn líta glaður um öxl, eftir þrjú og hálft ár í starfi sveitarstjóra. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast íbúum í starfi og leik, en um leið er hann leiður yfir að þannig hafi farið í liðinni viku að sveitarstjórn…Lesa meira

true

Talsvert um laus hross á vegum

Nokkuð var um lausagöngu hrossa í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Að morgni þriðjudagsins 12. nóvember var tilkynnt um lausa hesta á Vesturlandsvegi til móts við Narfastaði. Síðdegis á miðvikudag var tilkynnt um laus hross undir Hafnarfjalli, en fundið var út úr því hver eigandi hrossanna var, sem kom strax á staðinn…Lesa meira

true

Dópaður á fleygiferð

Á föstudag kl. 1:30 um nótt stöðvaði lögregla ökumann á Vesturlandsvegi til móts við Ölver á 131 km/klst., en hámarkshraði þar er sem kunnugt er 90 km/klst. Lögregla fann kannabislykt af ökumanninum og framkvæmdi fíkniefnapróf. Svaraði það jákvætt við neyslu kannabiss. Var maðurinn því handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var látinn gefa…Lesa meira

true

Víkingur Ó byrjar vel í Futsal

Íslandsmótið í innanhússfótbolta, eða Futsal, hófst um síðustu helgi. Víkingur í Ólafsvík tekur þátt í Futsalinu eins og áður og spilar liðið að þessu sinni í D-riðli ásamt Kríunni og Elliða en Björnin dró sig úr keppni. Fór þessi fyrri umferð riðilsins fram í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar sunnudaginn 17. nóvember. Strákarnir í Víkingi mættu vel stemmdir…Lesa meira

true

Trésmiðjan Akur stendur í dag á sextugu

Trésmiðjan Akur var stofnuð af þrennum hjónum 20. nóvember 1959. Þetta voru þau Magnús Lárusson húsgagnasmiður og Hallfríður Georgsdóttir, Gísli S. Sigurðsson húsasmiður og Erla Guðmundsdóttir og Stefán Teitsson húsasmiður og Fríða Lárusdóttir. Magnús og Hallfríður seldu sinn hlut árið 1964 en Gísli og Erla sinn hlut árið 1996. Í dag er fyrirtækið alfarið í…Lesa meira

true

Fjölskylda tók sig upp og flakkar um heiminn

Hjónin Ása Laufey Sigurðardóttir og Hallgrímur Þór Finnborgason lögðu af stað í heimsreisu ásamt þremur börnum sínum, Sigríði Freyju 16 ára, Guðlaugu Maríu 13 ára og Matthíasi Kára sem verður 9 ára í lok mánaðarins. Fjölsyldan, sem var búsett á Akranesi, tók ákvörðun um að selja húsið og allar sínar eigur síðasta sumar og héldu…Lesa meira

true

Ný stjórn í Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar

Aðalfundur Krabbameinsfélags Borgarfjarðar var haldinn 14. nóvember síðastliðinn í Borgarnesi. Góð mæting félagsmanna var á fundinn og þar var að vanda flutt fræðsluerindi sem að þessu sinni var kynning á starfi Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra. Frá Krafti komu Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri og Elín Sandra Skúladóttir formaður…Lesa meira

true

Óhapp í umferðinni

Umferðaróhapp varð í morgun um hálf átta leytið á gatnamótum Vesturlandsvegar og Grundartangavegar í Hvalfjarðarsveit. Bíl var ekið í veg fyrir annan, með þeim afleiðingum að þeir skullu saman. Engin slys urðu á fólki, en ökumaður annarrar bifreiðarinnar var þó fluttur á HVE til skoðunar. Bílarnir eru töluvert skemmdir eftir áreksturinn.Lesa meira