Fréttir

true

Minningarbekkur vígður um Skúla Alexandersson

  Minningarbekkur um Skúla Alexandersson, Strandamanninn og Sandarann, fyrrum oddvitann og alþingismanninn, var vígður við Bjarmahúsið á Hellissandi síðastliðinn föstudag. Anton Ingólfsson smíðaði bekkinn og var það Drífa dóttir Skúla, sem afhjúpaði bekkinn að viðstöddu fjölmenni. Skúli fæddist og ólst upp á Ströndum, flutti til Hellissands árið 1952 eftir nám í Samvinnuskólanum til að vinna…Lesa meira

true

Fyrsti grunnurinn í nokkur ár

Svanur Tómasson verktaki er nú að taka grunn fyrir íbúðarhúsnæði við Fellasneið 22 í Grundarfirði. Það væri svosem ekki merkileg frétt nema fyrir þær sakir að þetta er fyrsta nýbyggingin sem mun rísa síðan vel fyrir bankahrun. Áætlað er að framkvæmdir hefjist svo fljótlega og þarna muni reisulegt hús standa í framtíðinni.Lesa meira

true

Urðu allir jafn hissa – menn og hvolpar

Það varð uppi fótur og fit kvöld eitt í liðinni viku við trébryggjuna í Ólafsvík. Þá var tugur minkahvolpa að leik í grjótgarðinum. Ferðamenn sem voru þar á ferð ráku upp stór augu og það sama gerðu hinir spöku hvolpar sem voru jafn forvitnir um ferðamennina og mjög spakir.Lesa meira

true

Tónleikar í Stykkishólmskirkju á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 14. júlí fara fram tónleikar í Stykkishólmskirkju og hefjast þeir klukkan 20:00. Þar verður leikið á Klaisorgelið og saxafóna og eru það þær Lára Bryndís Eggertsdóttir og Dorthe Højland sem koma fram. Lára Bryndís Eggertsdóttir var 14 ára gömul þegar tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju. Hún lauk einleikaraprófi frá…Lesa meira

true

Beckham við veiðar í Langá

,,Konan kallaði á mig og sagði að David Beckham væri að veiða hérna fyrir neðan bústaðinn okkar við Langá. Ég fór og náði í kíki en var ekki viss,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson sem var við Langá á Mýrum þar sem David Beckham hefur verið við veiðar síðustu daga með fjölskyldu sinni og íslenskum vinum…Lesa meira

true

Malbikað í dag í Grundarfirði

Nú standa starfsmenn fyrirtækisins Hlaðbær Colas í ströngu við að malbika í Grundarfirði. Verið er að taka fimm botnlanga, fjóra botnlanga á Sæbóli og einn í Fellasneið. Svo er stór hluti Borgarbrautar einnig malbikaður í þessari umferð. Kominn var tími á malbikun á þessum götum en það gamla var farið að láta allverulega á sjá.…Lesa meira

true

Björn Bergmann genginn til liðs við Molde

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við norska úrvalsdeildarliðið Molde til þriggja ára. Björn verður þar með annar Íslendingurinn sem semur við Molde á árinu en Eiður Smári Gudjohnsen samdi við liðið fyrr á árinu. Björn Bergmann kemur frítt til Molde en hann lék síðast með liði Wolverhampton Wanderers í ensku b-deildinni. Hann hefur verið að…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu sinn þriðja leik í röð

Skagamenn er á miklu skriði þessa dagana en þeir unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir mættu Breiðabliki í tíundu umferð Pepsi deild karla í gærkvöldi. Skagamenn sigruðu leikinn sem fram fór á Kópavogsvelli 1 – 0 með marki Garðars Gunnlaugssonar. Með sigrinum hoppuðu Skagamenn upp um tvö sæti og eru nú í áttunda…Lesa meira

true

Fyrsta skírn í vita sem vitað er um

Síðastliðinn laugardag var stúlkubarn skírt í Akranesvita á Breið. Fékk hún nafnið Lotta Ósk. Foreldrar stúlkunnar eru Bergþór Ólason framkvæmdastjóri og Jennifer Flume. Það var séra Þráinn Haraldsson prestur á Akranesi sem framkvæmdi athöfnina, en Hanna Þóra Guðbrandsdóttir söngkona sá um tónlistarflutning. Þetta mun vera fyrsta skírn sem framkvæmd er inni í vita hér á landi, en…Lesa meira

true

Strandveiðum lýkur í dag frá Snæfellsnesi

Strandveiðum júlímánaðar lýkur í dag á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkur. Von er á tilkynningu í Stjórnartíðindum þar að lútandi. Veiðar á D svæði hafa þegar verið stöðvaðar, en það er svæðið sem nær frá Höfn og vestur um til og með Borgarbyggð. Veiði fyrir vestanverðu landinu hefur verið mjög góð í…Lesa meira