Fréttir

true

„Ekkert gleður eins og söngurinn“

Um miðjan október hófst samsöngur að nýju í Félagsbæ í Borgarnesi, að frumkvæði Halldórs Hólm Kristjánssonar, en einnig var sungið síðasta vetur. Samsöngurinn verður eftirleiðis alla miðvikudaga kl. 21:00, alveg fram á sumar. Halldór tekur fram að ekki er um kórastarf að ræða, heldur samsöng sem stendur öllum opinn og án endurgjalds. „Ef fólk vill…Lesa meira

true

Veturnætur á Byggðasafninu – fyrir þá sem þora!

Eins og margir vita halda draugar til á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi og af því tilefni verður hátíðin Veturnætur haldin þar (fyrir þá sem þora) í þriðja skipti fimmtudaginn 31. október frá klukkan 19:30-21:30. „Þetta er ævaforn skandinavísk hátíð sem fáir þekkja þó í dag, svo þetta er eiginlega líka smá skemmtimenntun í boði…Lesa meira

true

Á tvöföldum hámarkshraða

Erlendur ferðamaður var stöðvaður við sannkallaðan ofsaakstur á Snæfellsnesvegi til móts við Eldborg miðvikudaginn 24. október síðastliðinn. Var hann mældur á hvorki meira né minna ne 178 km/klst., þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Lögregla segir að þessi mikli hraði hafi komið sérstaklega á óvart í ljósi þess að akstursskilyrði hafi ekki verið góð þarna…Lesa meira

true

Landsmót Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar var í Snæfellsbæ

Landsmót Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar, ÆSKÞ, var haldið í Snæfellsbæ um síðustu helgi. Heppnaðist mótið vel enda mikil og góð dagskrá alla helgina. Á mótið mættu um 240 manns, bæði unglingar og leiðtogar þeirra, frá hinum ýmsu æskulýðsfélögum á landinu. Fjölgaði því heldur betur í Ólafsvík þessa helgi. Ungmennin gistu í húsnæði grunnskólans og konur í Kvenfélagi…Lesa meira

true

Stofnfundur Vesturlandsdeildar RKÍ

Rauða kross deildir Borgarfjarðar og Stykkishólms hafa sameinast í nýja deild, Vesturlandsdeild. Hún var stofnuð formlega 22. október síðastliðinn. „Með þessu er lagður grunnur að öflugri deild sem leiða munu krafta sína saman til góðra verka, en í stefnu RKÍ er lögð áhersla á að fækka deildum á landsvísu,“ segir Guðrún Vala Elísdóttir sem á…Lesa meira

true

Tap fyrir austan

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Hetti, 95-73, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var austur á Egilsstöðum. Snæfell byrjaði leikinn betur og leiddi fyrstu mínúturnar. Þeir skoruðu fyrstu sjö stigin en eftir það tóku heimamenn við sér og voru komnir yfir þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. Þeir áttu síðan…Lesa meira

true

Sóttu fyrstu stig vetrarins

Skallagrímur krækti í fyrstu stig vetrarins í 1. deild karla í körfuknattleik þegar liðið lagði Selfoss á útivelli. Leikið var á Selfossi í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu undirtökin allan leikinn og unnu að lokum þriggja stiga sigur, 86-89. Skallagrímur byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 2-15 eftir miðjan upphafsfjórðunginn. Þá tóku gestirnir rispu svo…Lesa meira

true

Geta til áramóta gerst stofnfélagar Sturlufélags

Í maímánuði síðastliðnum var Sturlufélag stofnað, en því ver ætlað að halda á lofti minningum um verk sagnaritarans Sturlu Þórðarsonar á Staðarhóli. Í samþykktum Sturlufélagsins segir: „Tilgangur félagsins er að halda á lofti nafni Sturlu Þórðarsonar sagnaritara á Staðarhóli og að heiðra á allan hátt framlag hans til íslenskrar menningar. Félagið hefur samstarf við aðra…Lesa meira

true

Jón Páll tekur við þjálfun Víkings Ólafsvík

Jón Páll Pálmason hefur gert þriggja ára samning við Víking Ólafsvík um þjálfun meistaraflokks í Inkasso deild karla í knattspyrnu. Eins og kunnugt er hætti Ejup Purisevic þjálfun liðsins eftir tímabilið í sumar og hefur nú tekið við þjálfun Stjörnunnar í Garðabæ. Samhliða þjálfun meistaraflokks mun Jón Páll gegna stöðu yfirþjálfara yngri flokka hjá Umf.…Lesa meira