Fréttir

true

Lagfæring fjölfarinna ferðamannavega brýnasta verkefnið

Kynnti rannsókn á ástandi vega og umferðarmannvirkja á Vesturlandi   Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi héldu fjóra kynningarfundi á Vesturlandi í síðustu viku þar sem vegamál og umferðaröryggi var til umræðu. Fundirnir voru haldnir í Stykkishólmi, Búðardal, Borgarnesi og Hvalfjarðarsveit. Á þeim hélt Ólafur Guðmundsson ráðgjafi erindi en hann hefur um árabil annast EuroRap öryggismat á…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma á Akranesi

Rafmagn fór af hluta Akraness upp úr klukkan níu í morgun. Í tilkynningu frá Veitum kom fram að það væri vegna háspennubilunar. Straumlaust var í rúman hálftíma. „Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Eignir hljómlistarsjóðs renna til Nikkolínu

Hljómlistarsjóður Steinars Guðmundssonar frá Hamraendum var stofnaður árið 1966, til minningar um Steinar Guðmundsson, sem var fæddur 29. júní 1938 og lést af slysförum í Reykjavík 15. des. 1965. Steinar fæddist og ólst upp á Hamraendum í Miðdölum. Þar var tónlist í hávegum höfð. Gróa Sigvaldadóttir húsfreyja söng í kirkjukórnum sem eiginmaður hennar, Guðmundur Baldvinsson…Lesa meira

true

Tax Free dagar hefjast á Akranesi í dag

Ellefu verslanir á Akranesi bjóða upp á Tax Free daga frá deginum í dag til laugardags, 24. til 26. október. Verslanirnar sem um ræðir eru Model, Bjarg, Lindex, Penninn Eymundsson, Gallerí Snotra, Omnis, Hans og Gréta, @home og Rammar og myndir, Nína og Dýrabær. Um áralanga hefð er að ræða hjá verslunum á Akranesi, en…Lesa meira

true

Ær nöguðu bíl

Lögreglunni á Vesturlandi var í liðinni viku tilkynnt um sauðkindur að naga bíl við bifreiðaverkstæði við Skarðshamra. Ærnar voru þá í makindum sínum að naga afturstuðara bifreiðar. Ekki er vitað hver eigandi sauðkindanna er, en það náðust af þeim myndir, að sögn lögreglu.Lesa meira

true

Fylltu Klifið á Fjölmenningarhátíð

Fjölmenningarhátíð var haldin í Klifi í Ólafsvík síðastliðinn sunnudag. Var þetta í fimmta skipti sem hátíðin er haldin og tókst mjög vel til í ár. „Við náðum að fylla Klifið,“ sagði Rebekka Unnarsdóttir verkefnastjóri Átthagastofu í samtali við Skessuhorn. Á hátíðinni býðst gestum að smakka þjóðarrétti frá ýmsum löndum en í ár voru hópar frá…Lesa meira

true

Ekið allt of hratt

Töluvert mikið af umferðamálum kom inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi undanfarna viku, bæði við almennt umferðareftirlit og eins í gegnum eftirlit með ómerktum myndavélabíl, sem og hraðamyndavélum. Hraðakstur er áfram mjög áberandi í umdæminu, að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Eitt grófasta dæmið um of hraðan akstur þessa vikuna kom upp að kvöldi þriðjudagsins 15. október, þegar…Lesa meira

true

Ráðstefna um litla og meðalstóra bæi á Norðurlöndunum

Í síðustu viku fór fram 60 manna ráðstefna á B59 hóteli í Borgarnesi. Umræðuefni hennar var: „Eru litlir og meðalstórir bæir á Norðurlöndunum næsta búsetubylgja fólks með breytta sýn á lífsgæði?“ Ráðstefnan var hluti af verkefninu „Attractive towns. Green redevelopment, competitive Nordic urban regions,“ og skipulagði Helena Guttormsdóttir lektor við LbhÍ hana. Í Skessuhorni sem…Lesa meira

true

Síðasti opnunardagur Kaffi Emils á föstudag

Síðasti opnunardagur Kaffi Emils í Grundarfirði verður næstkomandi föstudag, 25. október. Undanfarin þrjú og hálft ár hafa mæðgurnar Olga Sædís Aðalsteinsdóttir og Elsa Fanney Grétarsdóttir átt veg og vanda að rekstri kaffihússins, með aðstoð eiginmanna sinna, þeirra Grétars Höskuldssonar og Markúsar Inga Karlssonar. Blaðamaður hitti Olgu að máli síðastliðinn fimmtudag. Hún sagði að nú hefðu…Lesa meira

true

Þungar áhyggjur af stöðu FVA

Bæjarstjórn Akraness lýsir þungum áhyggjum af stöðu mála innan veggja Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, en mál FVA voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær, þriðjudaginn 22. október. „Ljóst er að mikil óánægja ríkir innan skólans og að allir starfsmenn eru í slæmri stöðu, jafnt stjórnendur og kennarar og aðrir starfsmenn,“ segir í ályktun bæjarstjórnar,…Lesa meira