Fréttir

true

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími á föstudaginn

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn, en lokatölur urðu 73-69. Skallagrímur komst fljótlega í fyrsta leikhluta fimm stigum yfir en Snæfell var ekki lengi að jafna. Leikhlutinn var nokkuð jafn allan tímann en það var ekki fyrr en um miðjan annan leikhluta sem Snæfell náði aðeins…Lesa meira

true

Borgarbyggð er hástökkvari ársins í fjármálum sveitarfélaga

Á fundi í byggðarráði Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var kynnt greining Arionbanka á ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2018. Þar kemur fram að Borgarbyggð er annað tveggja sveitarfélaga sem eru hástökkvarar ársins að mati bankans. „Ársreikningar þeirra sveitarfélaga sem hafa yfir 1500 íbúa voru teknir til skoðunar. Greiningardeild bankans hefur skilgreint veikleikaviðmið gagnvart 22 kennitölum í þessari…Lesa meira

true

Ljósleiðari dreginn yfir Skorradalsvatn

Lagning ljósleiðara um Skorradal er nú vel á veg komin, en verkið hófst vorið 2018. Búið er að tengja flesta bæi í sveitinni, auk nokkurra bæja í Andakíl. Sökum þess hve skógurinn er þéttur við veginn á móts við Stálpastaði var brugðið á það ráð að draga leiðarann yfir vatnið frá landamerkjum Haga og Vatnshorns.…Lesa meira

true

Drög að matsáætlun fyrir vindmyllur á Grjóthálsi

Eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni eru uppi áform um að reisa allt að sex vindmyllur á Grjóthálsi í Borgarfirði. Það eru eigendur jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð sem standa fyrir verkefninu. Nú hafa drög að matsáætlun fyrir vindmyllur á Grjóthálsi verið birt á vef VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is, og verið…Lesa meira

true

Fjallað um sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi

Annað kvöld, þriðjudaginn 22. október kl. 20, flytur Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti um sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi. Árum saman voru félagssagnfræðingar tregir til að nýta sér við rannsóknir persónulegar minningar fólks nema í mjög afmörkuðum tilgangi. Á síðari árum hefur orðið grundvallarbreyting á hugmyndum fræðimanna um stöðu…Lesa meira

true

Hvetja menntayfirvöld til að leysa erfitt ástand í FVA

Ekki er ofsagt að harðar deilur eru uppi innan veggja Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Deiluaðilar eru Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari annars vegar, en hins vegar nær allir kennarar við skólann sem lýst hafa vantrausti á störf hennar. Menntamálaráðherra ákvað í sumar að auglýsa starf skólameistara laust til umsóknar frá næstu áramótum, þegar skipunartíma núverandi skólameistara…Lesa meira

true

Ný stjórn kjörin á landsfundi Vinstri grænna

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn er á Grand hóteli um helgina var ný stjórn kjörin í flokknum. Alls barst 21 framboð í stjórn en hún er skipuð ellefu aðalmönnum og fjórum varamönnum. Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin formaður flokksins en hún hefur verið formaður frá árinu 2013. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra,…Lesa meira

true

Verkefnisstjóri í menningar- og byggðamálum

Sigursteinn Sigurðsson arkitekt hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Sigursteinn hefur síðustu átta ár rekið arkitektastofuna Gjafa í Borgarnesi en auk þess starfaði hann að sérverkefnum fyrir SSV á árunum 2012 til 2014. Hann hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í ýmsum framfara- og samfélagsmálum í heimabyggð og…Lesa meira

true

Vetraropnun Guðlaugar við Langasand

Á Langasandi er hægt að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins úr Guðlaugu sem er heit laug staðsett í grjótgarðinum við sandinn. Guðlaug er skilgreind sem náttúrulaug/afþreyingarlaug sem er opin allt árið um kring. Laugin er gjaldfrjáls og eru búningsklefar á staðnum. Vetraropnun í Guðlaugu hefur nú tekið gildi. Opið er miðviku- og föstudaga…Lesa meira

true

Agnes Joy var tekin upp á Akranesi

Íslenska kvikmyndin Agnes Joy var frumsýnd í Háskólabíói í gær. Fjölmenni var á sýningunni en um er að ræða mynd um Rannveigu sem er að upplifa kulnun í starfi og einkalífi. Þá er hjónabandið ekki vel statt og hún föst í starfi sem hún hatar og á í útistöðum við dóttur sína, Agnesi. Agnes er…Lesa meira