
Sóknarnefnd Stykkishólmskirkju hefur ákveðið að höfða dómsmál til að staðfesta með óyggjandi hætti eignarhald kirkjunnar á jörðinni Baulárvöllum í Helgafellsveit. Jörðin hefur verið eign kirkjunnar allt frá 1883, samkvæmt þinglýstu gjafabréfi þar um. Í gjafabréfinu segir m.a. að hvorki megi gefa eða að selja landið frá Stykkishólmskirkju en gera það svo ábatasamt sem hægt er.…Lesa meira








