Fréttir

true

Terra er nýtt nafn Gámaþjónustunnar

Nafni Gámaþjónustunnar var breytt mánudaginn 7. október síðastliðinn. Gengur fyrirtækið nú undir nafninu Terra. „Terra er latneskt heiti jarðargyðjunnar og eitt af nöfnum plánetunnar sem er heimkynni okkar allra og vel á við, enda snýr allt okkar starf að bættri umgengni við jörðina,“ segir um nafnabreytinguna á vef fyrirtækisins. Samhliða nýju nafni var nýtt merki…Lesa meira

true

Fyrsta landsliðsmark Arnórs

Tvítugi Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson, sem spilar nú sem atvinnumaður í knattspyrnu með CSKA Moskvu, skoraði sitt fyrsta mark fyrir íslenska landsliðið þegar Ísland vann Andorra 2-0 á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Arnór var valinn í byrjunarlið leiksins eftir að hafa setið á bekknum í leiknum gegn Frökkum á föstudaginn og má segja að hann hafi komið…Lesa meira

true

Hrönn og Örn sæmd gullmerki UMFÍ

Hrönn Jónsdóttir var sæmd gullmerki Ungmennafélags Íslands á sambandsþingi sem haldið var um síðustu helgi, sem og Örn Guðnason. Bæði sátu þau í stjórn UMFÍ, Hrönn sem ritari en Örn varaformaður og hvorugt þeirra gaf kost á sér til áframhaldandi setu á þinginu. Hrönn er 33 ára gömul og meðal þeirra yngstu sem hafa hlotið…Lesa meira

true

HSH fékk hvatningarverðlaun UMFÍ

Þrír sambandsaðilar Ungmennafélags Íslands voru heiðraðir með hvatningarverðlaunum UMFÍ á sambandsþingi sem haldið var um helgina á Laugarbakka í Miðfirði. Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH) fékk hvatningarverðlaun fyrir að stuðla að auknu samstarfi meðal aðildarfélaga og fyrir að ná vel til barna af erlendum uppruna. Ungmennasamaband Kjalarnesþings hlaut hvatningarverðlaun fyrir reiðskóla Hestamannafélagsins Harðar fyrir fatlaða…Lesa meira

true

Uppgötvaðu hæfileika þína á Starfsmenntaviku

Starfsmenntavikan er nú haldin í fjórða sinn undir kjörorðunum; „Uppgötvaðu hæfileika þína“. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnaði dagskrá hennar í gærmorgun: „Vel þjálfað og menntað starfsfólk, og frumkvæði þess og athafnavilji, eflir vinnumarkaðinn og eykur sveigjanleika hans. Við þurfum bæði hugvit og verkvit til þess að nýsköpun blómstri í okkar samfélagi og til þess…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum ferskum kjúklingi frá Reykjagarði seldum undir merkjum Holta, Kjörfugls og Krónunnar, vegna gruns um salmonellu í tveimur lotum. Dreifing á kjúklingnum hefur verið stöðvuð og stendur innköllun yfir. Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónan Framleiðandi: Reykjagarður, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík Lotunúmer: 001-19-36-3-02 (heill…Lesa meira

true

Ljóðasamkeppni grunnskólabarna á Óperudögum

Á Óperudögum, sem hefjast miðvikudaginn 30. október og standa fram á sunnudaginn 3. nóvember, verður efnt til ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna. Þema hátíðarinnar verður; ljóð fyrir loftslagið. Allir krakkar eru hvattir til að senda inn ljóð um loftslagið en það getur verið um náttúruna, drauma, framtíðina eða hvað það sem krökkunum dettur í hug, svo lengi…Lesa meira

true

Byrjað er að geisla vatn úr Grábrókarveitu

Starfsfólk Veitna vann nú um helgina að prófunum og stillingum á lýsingarbúnaði í vatnsbólinu í Grábrókarhrauni. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum á fimmtudaginn var staðfest e-coli smit í neysluvatni og íbúum í kjölfarið ráðlagt að sjóða allt neysluvatn. „Enn er stefnt að því að aflétta tilmælum um suðu á neysluvatni á…Lesa meira

true

Fyrstu stigin í hús

ÍA krækti í fyrsta sigur vetrarins í 2. deild karla í körfuknattleik þegar liðið lagði Stál-úlf á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Leikurinn fór fjörlega af stað. Eins og við var að búast af liði Skagamanna voru sóknirnar hraðar og mörg þriggja stiga skot látin fljúga. Stigaskorið var mjög hátt í leiknum, sem var engu…Lesa meira

true

Heimamenn sterkari á endasprettinum

Snæfell mátti játa sig sigrað gegn Selfossi á útivelli, 75-59, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikurinn var jafn og spennandi framan af en í síðari hálfleik sigu heimamenn fram úr og sigruðu að lokum með 16 stigum. Heimamenn skoruðu fyrstu stigin en Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir komust…Lesa meira