Fréttir

true

Konur breyttu búháttum – Ný bók um Mjólkurskólann í Borgarfirði

Það hefur ekki farið hátt að í Borgarfirði var rekinn Mjólkurskóli á árunum 1900-1918. Skólinn var settur til nýsköpunar í landbúnaði, til þess að mæta kreppu. Bændur hugðust framleiða smjör til útflutnings en það skorti þekkingu til þess að vinna smjörið fyrir hina kröfuhörðu markaði. Ráðinn var ungur danskur mjólkurfræðingur, Hans Jepsen Grönfeldt, til þess…Lesa meira

true

Tvö laus pláss í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum

Stjórn Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum auglýsir laus til umsóknar tvö liðspláss í deildinni á komandi tímabili, veturinn 2017. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið sem etja kappi í sex greinum hestaíþrótta á fimm kvöldum í febrúar og mars. Hvert lið sendir þrjá keppendur til leiks í hverja…Lesa meira

true

Reynt að uppræta skógarkerfil

Byggðarráði Borgarbyggðar hafa borist ábendingar um þær afleiðingar sem það getur haft ef skógarkerfill nær að dreifa úr sér nær óhindrað um sveitarfélagið. Telur bæjarráð brýnt að brugðist verði við þessari miklu útbreiðslu kerfilsins áður en hann verður illviðráðanlegur. Bæjarráð telur það þó ekki vera hlutverk sveitarfélagsins heldur hvetur það íbúa og félagssamtök að taka höndum…Lesa meira

true

Sólvellir fá andlitslyftingu

Starfsmenn vinnuskólans í Grundarfirði og bæjarins voru önnum kafnir við endurbætur á lóð leikskólans Sólvalla þegar Skessuhorn bar að garði síðastliðinn miðvikudag. Um er að ræða allt almennt viðhald lóðarinnar. Mála þurfti staura og girðingar, fylla upp í holur, skipta út nokkrum leiktækjum og að setja mottur undir rólurnar, og fleira slíkt. Einnig stóð til…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að þjónustumiðstöð á Arnarstapa

Eins og Skessuhorn greindi frá í lok júní er stefnt á að reisa 300 fermetra þjónustumiðstöð á Arnarstapa. Er það fyrirtækið Snjófell ehf, sem á og rekur Arnarbæ á Arnarstapa, sem stendur fyrir þessari uppbyggingu á svæðinu. Sverrir Hermannsson, eigandi og framkvæmdarstjóri Snjófells, tók fyrstu skóflustungan af þjónustumiðstöðinni á fimmtudaginn, 7. júlí. Áætlað er að þjónustumiðstöðin…Lesa meira

true

Markalaust jafntefli í Vesturbænum

Fyrr í dag mættust KR og Víkingur Ólafsvík í tíundu umferð Pepsi deildar karla á KR-vellinum í Vesturbænum. Fyrir leikinn voru Víkingar í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig en KR í tíunda með níu stig. Willum Þór Þórsson stýrði liði KR liðinu í fyrsta sinn á þessu tímabili í deildinni eftir að hann var…Lesa meira

true

Leik ÍA og Breiðabliks frestað

Leikur ÍA og Breiðabliks í tíundu umferð Pepsi deildar karla sem átti að fara fram í dag klukkan 16:00 á Kópavogsvelli hefur verið frestað. Leikurinn fer fram á morgun klukkan 19:15. Ástæðan fyrir seinkuninni er sú að Blikar eru nýkomnir heim frá Lettlandi þar sem þeir kepptu Evrópuleik við Jelgava. Eftir slíka ferð eiga þeir…Lesa meira

true

Fimmtán laxar komnir á land í Reykjadalsá

,,Veiðin hefur verið allt í lagi i Reykjadalsá og núna eru komnir 15 laxar á  land og hann er 14 pund sá stærsti,, sagði Óskar Færseth er við spurðum stöðuna í ánni fyrir helgi. Tíminn í Reykjadalsá er að byrja núna svo þetta er í góðu lagi. ,,Við erum bara hressir með þessa stöðuna í…Lesa meira

true

Vigdísarvöllur og Guðnagrund í Ausu

Laugardaginn 29. júní árið 1980 vakti Ísland athygli umheimsins, líkt og nú. Þá var Vigdís Finnbogadóttir kjörin forseti Íslands. Í þessum kosningum bar hún sigurorð af þremur körlum. Dagana fyrir kosninguna starfaði Ólafur Jóhannesson bóndi og vélamaður á Hóli í Lundarreykjadal að jarðvinnslu fyrir bændurna Jón og Auði í Ausu. Við það verk var hann…Lesa meira

true

Bylting í neyslu kældra drykkja

Límtré Vírnet var með bás í sölutjaldi Landsmóts hestamanna á Hólum. Þar mátti sjá hurð sem fyrirtækið framleiðir en um er að ræða nýjungar í framleiðslu fyrirtækisins á sviði yleininga og útfærslu á bási í hesthús. Það sem stal þó senunni var það sem starfsmenn Límtrés Vírnets kölluðu byltingu í neyslu kældra drykkja. Nú þarf…Lesa meira