
Samkomulag ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára verður undirritað síðdegis í dag. Af því tilefni hefur forsætisráðuneytið boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum kl. 16:15 í dag, fimmtudaginn 26. september, þar sem samkomulagið verður kynnt. Viðstaddir verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra…Lesa meira








