Fréttir

true

Trúir að fólki fjölgi aftur í Hvalfjarðarsveit

Í byrjun mánaðarins greindi Skessuhorn frá samantekt Þjóðskrár um íbúafjölda eftir sveitarfélögum. Samkvæmt þeim hefur næstmest fækkun íbúa í einstökum sveitarfélögum frá 1. desember til 1. september verið í Hvalfjarðarsveit en þar fækkaði um 33 íbúa, eða 5,1% á fyrrgreindu níu mánaða tímabili. Nú búa 617 í sveitarfélaginu. Að sögn Lindu Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra er…Lesa meira

true

Stórrigningar hleyptu lífi í veiðina á síðustu metrunum

Stórrigningar hleyptu aðeins lífi í veiðina síðustu vikuna, en lítið var samt að koma af nýjum laxi í árnar sem enn er veitt í. Veiðimenn fengu fínar tökur af laxi sem greinilega hafði frískast við aukið súrefni. ,,Það var gaman að fá fyrsta flugulaxinn í Fluguklöppinni í Litlu Þverá,“ sagði María Gunnarsdóttir en hún veiddi…Lesa meira

true

Íbúaþing um lærdómssamfélagið Akranes

Íbúaþing með yfirskriftinni „Lærdómssamfélagið Akranes“ verður haldið miðvikudaginn 2. október í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þar verður fjallað um mennta- og frístundamál og hvað felst í því að búa í lærdómssamfélagi. Stuttir fyrirlestrar, málstofur og umræður er á dagskránni. “Skráning er opin og mikilvægt að áhugasamir skrái sig og velji tvær málstofur. Setning þingsins verður…Lesa meira

true

Landlæknir birtir ábendingar vegna rafrettunotkunar

Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi hér á landi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Viðkomandi er nú á batavegi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá landlækni þar sem birtar eru ábendingar til almennings, skólastjórnenda og lækna vegna gruns…Lesa meira

true

Haustið skartar sínum fegurstu litum

Litadýrð haustsins er allsráðandi þessa dagana. Nú er tíminn til að drífa sig út og njóta, gjarnan með myndavélina, og fanga glæsileikann í íslenskri náttúru. Myndin er frá Ölveri við Hafnarfjall.Lesa meira

true

Hreinsunarátak í Borgarbyggð

Hreinsunarátak í dreifbýli Borgarbyggðar er framundan. Vikuna 1.-8. október verða settir verða niður gámar fyrir grófan úrgang, timbur- og málmúrgang í Bæjarsveit, Brautartungu, á eyrinni við Bjarnastaði og við Lund. Dagana 11.-18. október verða gámar við Lyngbrekku, Lindartungu, Eyrina við Bjarnadalsá, Högnastaði og á Hvanneyri. Í tilkynningu eru íbúar minntir á að flokka rétt og…Lesa meira

true

Kíkt í réttir á Vesturlandi

Í framhaldi af syrpu mynda úr réttum í síðasta tölublaði Skessuhorns höldum við ferð okkar áfram í blaðinu sem kom út í dag. Að þessu sinni birtum við myndir úr Reynisrétt við Akrafjall, Ólafsvíkurrétt, Hrafnkelsstaðarétt í Kolgrafafirði, Arnarhólsrétt í Helgafellssveit og Rauðsgilsrétt í Hálsasveit. Allt eru þetta réttir með fremur fáu fé, en engu að…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Dalbraut 4 á fullum skriði

„Þetta er komið á fleygiferð og gerist hratt þessa dagana,“ segir Jón Ágúst Garðarsson, framkvæmdastjóri Bestlu, í samtali við Skessuhorn. Framkvæmdir fyrirtækisins við fimm hæða íbúða- og þjónustuhús við Dalbraut 4 á Akranesi hófust formlega með skóflustungu 22. febrúar síðastliðinn og eru nú komnar á fullt. Á neðstu hæð hússins verður 1270 fermetra salur í…Lesa meira

true

Fremur hlýtt miðað við árstíma

Veðurspá gerir ráð fyrir austan- og norðaustanátt í dag, 8-15 m/s, en hvassast verður við suðausturströndina. Dálítil rigning fyrir sunnan og austan, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt annars staðar. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á Vesturlandi en svalast fyrir austan. Norðaustanátt, 5-10 m/s á fimmtudag. Dálítil væta fyrir norðan og austan og…Lesa meira

true

Geir Konráð eltir ástina til vanþróaðasta ríkis heims

„Sambandið var komið á það stig að kærastan mín sagði að ef við ætluðum að halda áfram þyrftum við að taka næsta skref, fara að búa saman. Ég bjóst kannski við að við myndum þá flytja inn saman hér á Íslandi eða í Bandaríkjunum. Ég bjóst alls ekki við að það yrði í vanþróaðasta ríki…Lesa meira