Fréttir

true

Stórar uppsagnir hjá fjármálastofnunum

Í dag voru uppsagnir hjá tveimur íslensku viðskiptabönkunum. Arionbanki sagði upp 100 starfmönnum og Íslandsbanki upp 20, auk sex annarra fyrr í mánuðinum. Þá hefur Validor, dótturfélag Arion banka, sagði upp 12 starfsmönnum. Nú eru því 140 færri sem starfa í bankatengdri starfsemi en voru fyrr í mánuðinum. Fram kemur í tilkynningum frá þessum fjármálastofnunum…Lesa meira

true

Sexhjólum bætt við tækjaflota Heiðars

Björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði fékk í upphafi þessa mánaðar afhent tvö ný sexhjól frá Ellingsen sem eru að sögn Arnars Grétarssonar mikil bylting fyrir sveitina. „Það er töluvert betra að fara yfir á svona hjóli en fjórhjóli. Þau komast meira og fara betur með landið, spóla síður og skilja eftir sig minni ummerki. Svo er…Lesa meira

true

Opnunartími Kjörbúðar í Búðardal styttur

Opnunartími Kjörbúðarinnar í Búðardal hefur verið styttur. Miði á hurð beið viðskiptavina verslunarinnar í byrjun síðustu viku þar sem greint var frá styttingu opnunartímans. Þar kom fram að frá og með 16. september er opið frá kl. 9:00 til 18:00 mánudag til fimmtudags, en frá 9:00 til 19:00 á föstudögum eins og áður var alla…Lesa meira

true

Trúir að fólki fjölgi aftur í Hvalfjarðarsveit

Í byrjun mánaðarins greindi Skessuhorn frá samantekt Þjóðskrár um íbúafjölda eftir sveitarfélögum. Samkvæmt þeim hefur næstmest fækkun íbúa í einstökum sveitarfélögum frá 1. desember til 1. september verið í Hvalfjarðarsveit en þar fækkaði um 33 íbúa, eða 5,1% á fyrrgreindu níu mánaða tímabili. Nú búa 617 í sveitarfélaginu. Að sögn Lindu Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra er…Lesa meira

true

Stórrigningar hleyptu lífi í veiðina á síðustu metrunum

Stórrigningar hleyptu aðeins lífi í veiðina síðustu vikuna, en lítið var samt að koma af nýjum laxi í árnar sem enn er veitt í. Veiðimenn fengu fínar tökur af laxi sem greinilega hafði frískast við aukið súrefni. ,,Það var gaman að fá fyrsta flugulaxinn í Fluguklöppinni í Litlu Þverá,“ sagði María Gunnarsdóttir en hún veiddi…Lesa meira

true

Íbúaþing um lærdómssamfélagið Akranes

Íbúaþing með yfirskriftinni „Lærdómssamfélagið Akranes“ verður haldið miðvikudaginn 2. október í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þar verður fjallað um mennta- og frístundamál og hvað felst í því að búa í lærdómssamfélagi. Stuttir fyrirlestrar, málstofur og umræður er á dagskránni. “Skráning er opin og mikilvægt að áhugasamir skrái sig og velji tvær málstofur. Setning þingsins verður…Lesa meira

true

Landlæknir birtir ábendingar vegna rafrettunotkunar

Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi hér á landi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Viðkomandi er nú á batavegi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá landlækni þar sem birtar eru ábendingar til almennings, skólastjórnenda og lækna vegna gruns…Lesa meira

true

Haustið skartar sínum fegurstu litum

Litadýrð haustsins er allsráðandi þessa dagana. Nú er tíminn til að drífa sig út og njóta, gjarnan með myndavélina, og fanga glæsileikann í íslenskri náttúru. Myndin er frá Ölveri við Hafnarfjall.Lesa meira

true

Hreinsunarátak í Borgarbyggð

Hreinsunarátak í dreifbýli Borgarbyggðar er framundan. Vikuna 1.-8. október verða settir verða niður gámar fyrir grófan úrgang, timbur- og málmúrgang í Bæjarsveit, Brautartungu, á eyrinni við Bjarnastaði og við Lund. Dagana 11.-18. október verða gámar við Lyngbrekku, Lindartungu, Eyrina við Bjarnadalsá, Högnastaði og á Hvanneyri. Í tilkynningu eru íbúar minntir á að flokka rétt og…Lesa meira

true

Kíkt í réttir á Vesturlandi

Í framhaldi af syrpu mynda úr réttum í síðasta tölublaði Skessuhorns höldum við ferð okkar áfram í blaðinu sem kom út í dag. Að þessu sinni birtum við myndir úr Reynisrétt við Akrafjall, Ólafsvíkurrétt, Hrafnkelsstaðarétt í Kolgrafafirði, Arnarhólsrétt í Helgafellssveit og Rauðsgilsrétt í Hálsasveit. Allt eru þetta réttir með fremur fáu fé, en engu að…Lesa meira