Fréttir

true

Úrhellisrigning í dag um suðvestanvert landið

Veðurstofan hefur sent frá sér gula viðvörun vegna mikillar rigningar í dag um suðvestanvert landið; þ.m.t. höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa. „Það verður talsverð eða mikil rigning. Búast má við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á…Lesa meira

true

Námskeið um Sturlu Þórðarson og Sturlungu

Um langt árabil hafa Snorrastofa, Landnámssetur Íslands og Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi staðið fyrir námskeiði um fornsögur, sem farið hefur fram yfir vetrarmánuðina til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu. Námskeið vetrarins 2019-2020 verður um Sturlu Þórðarson og hans þátt í Sturlungu og það þótti því vel við hæfi að leita til nýstofnaðs Sturlufélags í Dölum um…Lesa meira

true

„Þetta skellur á manni eins og bylgja og maður varla nær andanum fyrstu dagana“

Ólavía Þorkelsdóttir er fimm ára Skagamær sem greindist með Stjarnfrumuæxli í heila mánudaginn 3. júní síðastliðinn. Ólavía var hress og kát að leika við bróður sinn þegar blaðamaður Skessuhorns heimsótti fjölskylduna á dögunum og settist niður með foreldrum hennar, þeim Liv Åse Skarstad og Þorkatli Kristinssyni, og ræddi við þau um veikindi Ólavíu. Miðvikudaginn 29.…Lesa meira

true

Með hvellhettur á heimilinu

Ökumaður var stöðvaður við Olís í Borgarnesi á mánudag, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að sögn lögreglu kom í ljós að sá grunur var á rökum reistur. Maðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina. Hann heimilaði leit í bíl sínum og heimili. Við þá leit fannst ætlað amfetamín og e-töflur. Á heimili…Lesa meira

true

Var að ljúka leit númer 176

Síðastliðinn sunnudag kom Jóhann Oddsson bóndi á Steinum í Stafholtstungum úr leit á Holtavörðuheiði. Þetta var jafnframt 60. haustið sem hann fer í leitir, fór fyrst þegar hann var fjórtán ára. Öll árin utan það fyrsta hefur Jóhann farið í þrjár leitir að hausti. Hann hefur því farið 176 sinnum í leitir sem talið er…Lesa meira

true

Baulan innsigluð

Vegfarendur sem ætluðu að koma við í verslun Baulunnar í Borgarfirði síðdegis í gær komu að lokuðum dyrum. Hafði lögregla lokað staðnum og innsiglað. Aðspurður segir Ásmundar Kr. Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að Lögreglan á Vesturlandi tjái sig ekki um einstök mál af þessu tagi.Lesa meira

true

Umbra með tónleika í Vinaminni

Fimmtudaginn 19. september klukkan 20, mun tónlistarhópurinn Umbra heimsækja Akranes. Umbra mun flytja blandaða efnisskrá af trúarlegri og veraldlegri miðaldatónlist frá Evrópu í bland við íslensk þjóðlög. Tónlistarhópurinn Umbra var stofnaður árið 2014 og er skipaður þeim Alexöndru Kjeld sem spilar á kontrabassa, Arngerði Maríu Árnadóttur sem leikur á orgel og keltneska hörpu, Guðbjörgu Hlín…Lesa meira

true

Borgarbyggð kallar eftir ábendingum

Borgarbyggð hefur, í samstarfi við Capascent, ráðist í verkefni sem miðar að því að bæta þjónustu og skilvirkni á umhverfis- og skipulagssviði sveitarfélagsins og bæta móttöku og vinnslu erinda sem berast sveitarfélaginu. Ráðgjafar Capacent vinna nú að greiningu á þjónustu sveitarfélagsins og í því felst meðal annars að fá innsýn í upplifun notenda þjónustunnar, það…Lesa meira

true

Jafnt á Akranesvelli

ÍA og Grindavík skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 21. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesvelli í gær. Skagamenn sigldu lygnan sjó um miðja deild fyrir leikinn, en Grindvíkingar þurftu á stigi að halda til að eiga minnsta möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Bæði lið voru…Lesa meira

true

Dönsk landsliðskona í Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við dönsku landsliðskonuna Emilie Hesseldal. Mun hún leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deildinni á næstu leiktíð. Emilie er 28 ára gömul, 186 cm á hæð og leikur stöðu framherja. Hefur hún leikið með félagsliðum í heimalandinu Danmörku og í Portúgal við góðan orðstír, að því er fram kemur á Facebook-síðu…Lesa meira