Fréttir

true

Lækka gatnagerðargjöld og fella niður lóðagjöld iðnaðarlóða

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var ákveðið að lækka gatnagerðargjöld af lóðum á athafnasvæðinu að Sólbakka í Borgarnesi. Samþykkt var að lækka gatnagerðargjöld um 50% og fella niður lóðagjöld af þeim frá og með 1. október 2019 fram til ársloka 2020. Einnig er Borgarbyggð að breyta deiliskipulagi á svæðinu á þann veg að lóðir…Lesa meira

true

Tap í síðasta heimaleiknum

Skallagrímur beið lægri hlut gegn Vængjum Júpiters, 1-3, í þegar liðin mættust í 3. deild karla í knattspyrnu á Skallagrímsvelli í gær. Var þetta síðasti heimaleikur Borgnesinga í sumar. Öll mörk leiksins gegn Vængjum Júpiters komu í fyrri hálfleik. Sigurjón Ari Guðmundsson kom Skallagrími yfir strax á 4. mínútu leiksins en Daníel Rögnvaldsson jafnaði metin…Lesa meira

true

Ferðamenn sýna sjálfbærri raforkuframleiðslu mikinn áhuga

Í lok síðustu viku buðu hjónin Bergþór Kristleifsson og Hrefna Sigmarsdóttir, eigendur og ábúendur á Húsafelli í Borgarfirði, hópi fólks í heimsókn. Gestahópurinn var valinn út frá tilefninu sem var að kynna fyrir þingmönnum og öðrum raforkuframleiðslu á Húsafelli sem nú á sér ríflega áttatíu ára sögu, sögu sem teygir sig til fjögurra kynslóða bænda…Lesa meira

true

Furðulegt hve fáir geta lært að þegja

Á morgun, laugardaginn 14. september klukkan 14 verður haldið útgáfuhóf nýrrar ljóðabókar. Fer það fram í Kattholti, athvarfi og bjargarstað katta, enda er höfundur bókarinnar hin skáldmælta Jósefína Meulengracht Dietrich, roskin og ráðsett læða og mannfræðingur sem nú lifur einu af sínum síðari lífum á Akranesi. Útgefandi bókarinnar er Bjarni Harðarson hjá Sæmundi bókaútgáfu en…Lesa meira

true

Bensó – einu sjoppunni í Stykkishólmi – hefur verið lokað

Heimamenn og gestir í Stykkishólmi hafa síðustu tvo daga komið að læstum dyrum þegar þeir hafa ætlað í Bensó, einu sjoppuna í bæjarfélaginu. Af þeim sökum er nú styst að aka til Grundarfjarðar vanti fólki að kaupa lottó, tóbak, ís í brauðformi eða nauðsynjar. Verslun Olís í Stykkishólmi var eins og kunnugt er lokað í…Lesa meira

true

Fyrsta óhappið sem rekja má til hálku

Tvennt var í bílaleigubíl sem lenti utan vegar og á hvolfi fyrir hádegi í dag á Snæfellsnesvegi milli bæjanna Stóru-Þúfu og Grafar í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ekki urðu alvarleg slys á fólkinu, en það var engu að síður flutt undir læknishendur til skoðunar. Sjúkraflutningamenn frá Grundarfirði, sem voru í sjúkraflutningi, komu að slysstað og aðstoðuðu…Lesa meira

true

Hyggjast efla flutningskerfi raforku vegna fyrirhugaðra vindorkuvera

Eins og fram hefur komið í Skessuhorni eru þrjú fyrirtæki að undirbúa jafn mörg vindorkuver í Dölum og Garpsdal. Ef áætlanir ganga eftir munu þau rísa á Hróðnýjarstöðum og Sólheimum í Laxárdal en það þriðja í Garpsdal við Gilsfjörð. Ef allar þessar þrjár virkjanir verða að veruleika mun heildar raforkuframleiðsla þeirra verða allt að 410…Lesa meira

true

Sökklar undir nýjan leikskóla

Búið er að jarðvegsskipta á lóð undir nýjan leikskóla Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Í húsinu verða einnig skrifstofur fyrir starfsfólk leikskólans og grunnskólans. Í vikunni var unnið við að koma sökklum fyrir á lóðinni. Næsti verkhluti er steypa á plötu áður en reistar verða forsteyptar einingar. Byggingaverktaki er Eiríkur J Ingólfsson. Nýr leikskóli verður…Lesa meira

true

Taka undir áskorun til stjórnvalda vegna raforkuverðs

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi tekur heilshugar undir áskorun bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar og sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkukræfs iðnaðar. Í áskoruninni kemur fram að rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi hefur versnað til muna vegna mikilla verðhækkana á raforku. „Þær hækkanir geta haft afar slæm áhrif á starfsemi orkukræfs iðnaðar á Vesturlandi,…Lesa meira

true

Gátu sér til um fjölda bóka á safninu

Bókasafnsdagurinn var haldinn hátíðlegur á skólasafni Brekkubæjarskóla á Akranesi 9. september síðastliðinn. Þar á meðal var boðið uppá að svara spurningu dagsins, „Hvað eru margar bækur á skólasafninu?“ Alls svöruðu 166 einstaklingar. Fjöldi bóka á safninu er í dag 19.007 og sú sem var næst réttu svari var Anna Lea, nemandi í 3. bekk sem…Lesa meira