
Umsóknarfrestur um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi rann út 1. september síðastliðinn. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um embættið. Umsækjendur eru: Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari, Steinunn Inga Óttarsdóttir sérfræðingur hjá Félagi framhaldsskólakennara, Steingrímur Benediktsson framhaldsskólakennari og Þorbjörg Ragnarsdóttir aðstoðarskólameistari. „Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embættið til fimm ára frá…Lesa meira








