
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við kanadíska fyrirtækið Acardian Seaplants Ltd. um uppbyggingu rannsókna,- vinnslu- og afurðamiðstöðvar þangs í Stykkishólmi. Er sú niðurstaða í samræmi við niðurstöðu ráðgjafarnefndar sem fjallaði um málið. Acadian Seaplants Limited hefur 38 ára reynslu af sjálfbærri þangtekju og þörungavinnslu í Kanada.…Lesa meira








