Fréttir

true

Fékk blómvönd frá bæjarstjórninni

Í tilefni þess að sunnudaginn 1. september voru rétt 70 ár frá því Jón Hjartarson rakari hóf störf við iðn sína á Akranesi, ákvað bæjarstjórn Akraneskaupstaðar að koma honum á óvart síðastliðinn föstudag. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri ásamt bæjarfulltrúunum Einari Brandssyni og Elsu Láru Arnardóttur komu á rakarastofuna og færðu honum blómvönd og óskuðu til…Lesa meira

true

Kirkjufellsplanið malbikað

Mánudaginn 26. ágúst voru nýju bílastæðin á áningarstaðnum við Kirkjufellsfoss í Grundarfirði malbikuð. Svæðið er tæplega þrjú þúsund fermetrar að flatarmáli og fer megnið af því undir bílastæði samkvæmt hönnun áfangastaðarins. Áætlað er að ljúka ýmsum frágangi á svæðinu á næstunni. Í skoðun er hvort aðkomuvegi inn á svæðið verði hliðrað eitthvað við endanlegan frágang…Lesa meira

true

Tekur samfélagsmiðlapásur

Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir ræddi við blaðamann Skessuhorns í liðinni viku um mikilvægi þess að taka sér samfélagsmiðlapásur. Hún tók fyrstu pásuna fyrir rúmum tveimur árum og hefur samviskusamlega tekið vikupása frá helstu samfélagsmiðlum á fjögurra til fimm vikna fresti. Sjá fróðlegt viðtal við Jóhönnu í Skessuhorni sem kom út í dag.Lesa meira

true

Dósaþjófar gómaðir

Óprúttnir aðilar voru á ferð um umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið og stálu miklu magni af dósum og gaskútum. Viðkomandi voru stoppaðir í Borgarfirði þegar lögreglumaður á frívakt sá til bíls sem passaði við lýsingu frá því sást til þeirra á Akranesi. Voru þeir handteknir og telst málið upplýst, að sögn lögreglu.Lesa meira

true

Nýtt fiskveiðiár gengið í garð

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir nýhafið fiskveiðiár. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári. Að þessu sinni er úthlutað 372 þúsund tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 384 þúsund þorskígildistonn í fyrra, reiknað í þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í…Lesa meira

true

Ný hleðslustöð við Bjarkalund

Nýlega setti Orkubú Vestfjarðar upp hleðslustöð fyrir rafbíla í Bjarkalundi í Reykhólasveit. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að Orkubúið rekur nú fjórar hleðslustöðvar, hinar þrjár eru á Hólmavík, Reykjanesi og Patreksfirði. Einnig stendur til að setja upp hleðslustöð í Flókalundi eftir því sem fram kemur í fréttinni.Lesa meira

true

Borgfirðingur sendiherra Íslands í Noregi

Síðastliðinn fimmtudag afhenti Ingibjörg Davíðsdóttir Haraldi V. Noregskonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Noregi. Undir umdæmi sendiherra Íslands í Noregi falla auk þess fjögur önnur ríki. Það eru Egyptaland, Grikkland, Íran og Pakistan. Ingibjörg er frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð, dóttir Guðrúnar Jónsdóttur og Davíðs Aðalsteinssonar. Hún hefur fjölbreytta reynslu úr utanríkisþjónustunni, hefur starfað þar…Lesa meira

true

Eitt líf nýtur stuðnings Á allra vörum

Kynningar- og fjáröflunarátakið Á allra vörum hófst í níunda sinn með viðburði í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. Þar var tilkynnt að forvarnar- og fræðsluátakið Eitt líf muni njóta ágóða söfnunarinnar í ár. Á allra vörum var stofnað árið 2008 af Gróu Ásgeirsdóttur, Guðnýju Pálsdóttur og Elísabetu Sveinsdóttur í þeim tilgangi að velja eitt málefni árlega og…Lesa meira

true

Lokun á Akrafjallsvegi í kvöld

Í kvöld, þriðjudaginn 3. september kl. 20:00, verður Akrafjallsvegi lokað við hitaveitugeymana skammt ofan við Akranes. Ástæða lokunarinnar er vinna við endurnýjun aðveituæðar frá Deildartungu. Umferð verður beint suður með Akrafjalli á meðan framkvæmdir standa yfir.Lesa meira

true

Lækka tolla á blómkáli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um lækkun tolla á blómkál næstu þrjá mánuði. Rannsókn stjórnvalda hefur leitt í ljós að skortur er á vörunni á markaði og eru því skilyrði búvörulaga uppfyllt um að lækka megi innflutningstolla til að greiða fyrir innflutningi. „Samkvæmt lögunum telst framboð ekki nægjanlegt ef varan er…Lesa meira