
Nýlega setti Orkubú Vestfjarðar upp hleðslustöð fyrir rafbíla í Bjarkalundi í Reykhólasveit. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að Orkubúið rekur nú fjórar hleðslustöðvar, hinar þrjár eru á Hólmavík, Reykjanesi og Patreksfirði. Einnig stendur til að setja upp hleðslustöð í Flókalundi eftir því sem fram kemur í fréttinni.Lesa meira








