Fréttir

true

Fordæmalausar aðstæður í laxveiðinni

„Hvað laxveiði varðar þetta veiðitímabilið þá er það sem er að eiga sér stað einfaldlega fordæmalaust og ástand sumsstaðar með þeim hætti að líklega væri best að sleppa öllum laxi eða hreinlega hlífa fyrir veiði. Reyndar gerist það af sjálfu sér í þeim tilvikum þar sem hreinlega ekki veiðist sökum aðstæðna,“ segir í frétt á…Lesa meira

true

Kólnar í veðri og færð gæti jafnvel spillst á heiðum norðanlands

Verulega mun kólna í veðri á landinu um helgina, einkum þó norðan heiða. Spáð er fremur kaldri norðanátt miðað við árstíma með vætu á norðanverðu landinu í dag og á morgun. Bætir svo í vind og úrkomu á þeim slóðum á sunnudag og mánudag og kólnar enn meira. Þar má búast við talsverðri rigningu, en…Lesa meira

true

Listahátíðin Plan-B hefst í dag í Borgarnesi

Plan-B Art Festival verður haldið í þriðja sinn í Borgarnesi nú um helgina, dagana 9.-11. ágúst. Listahátíðinni var þó þjófstartað í gær, en þá hélt Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir erindi í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem hún útskýrði samtímalist og hvers vegna erfitt getur reynst að skilja hana. Inga Björk er einn af stofnendum og skipuleggjendum…Lesa meira

true

Neytendasamtökin vara við Almennri innheimtu ehf

Ábendingar hafa að undanförnu borist Neytendasamtökunum vegna innheimtu á ólöglegum smálánum frá Almennri innheimtu ehf. Lántakendum er af fyrirtækinu neitað um sundurliðun á kröfum og innheimta ólögmætra lána heldur áfram. „Það er stóralvarlegt að innheimtufyrirtæki í eigu lögmanns (og er því ekki undir eftirliti FME) skuli komast upp með að neita að afhenda gögn um…Lesa meira

true

Langmest umferðaraukning um Vesturland

Umferðin í júlí á Hringvegi eitt um landið jókst um 1,4% að jafnaði í júlí. Það er minnsta aukning í umferðinni í þessum mánuði síðan árið 2012. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að aukning umferðar í ár í heild gæti numið 2,7% sem að sama skapi væri minnsta aukning síðan árið…Lesa meira

true

Ný heilbrigðisstefna kynnt á fundi á Akranesi í næstu viku

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030, var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þessi mikilvægu tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu verða kynnt á opnum fundi sem haldinn verður í fundasal HVE á Akranesi fimmtudaginn 15. ágúst nk. klukkan 17-19. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er…Lesa meira

true

Vatnsmagn í Norðurá komið niður í sögulegt lágmark

Vatnsbúskapur Norðurár í Borgarfirði er kominn niður í sögulegt lágmark. Á rennslismælinum í Stekk mældist rennslið 1,7 rúmmeter á sekúndu í gær. Til samanburðar var rennslið 3,8 rúmmetrar á fyrsta veiðidegi í ánni í byrjun júní og þótt mönnum nóg um. Rennslið var 40 rúmmetrar þegar veiði hófst rigningarsumarið 2018. Í gær hafði 241 lax…Lesa meira

true

Mikið um að vera í Laugardalnum um helgina

Um næstu helgi verða tvennir tónleikar með breska tónlistarmanninum Ed Sheeran í Laugardalnum í Reykjavík. Í kynningu um tónleikana segir að þetta verði fjölmennustu tónleikar sem haldnir hafa verið hér á landi. Auk tónleikanna verður á laugardaginn leikur í undankeppni EM í körfubolta. Þá tekur Ísland á móti Sviss klukkan 13 í Laugardalshöllinni. „Leiktíminn er…Lesa meira

true

Farfuglar standa fyrir Vatnsviku

Farfuglar á Íslandi standa fyrir Vatnsviku dagana 5. – 10. ágúst í þeim tilgangi að vekja athygli gesta á mengun af völdum plasts og hvetja þá til að nota brúsa í stað þess að kaupa vatn í einnota plastflöskum. Verkefni Inspired By Iceland veitti farfuglum innblástur til vatnsvikunnar. Einnig er tilgangurinn að benda ferðamanninum á góða…Lesa meira

true

Umhverfisganga hefst á sunnudaginn í Stykkishólmi

Umhverfisganga verður í Stykkishólmi dagana 11. til 14. ágúst. Þar mun Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri ásamt formönnum umhverfis- og náttúrverndarnefndar og skipulags- og byggingarnefndar Stykkishólmsbæjar, ásamt öðrum fulltrúum bæjarins, ganga með íbúum um hverfi Stykkishólmsbæjar og huga að nánasta umhverfi. „Tilgangur umhverfisgöngu um hverfi Stykkishólmsbæjar er að efna til samtals um nánasta umhverfi, hvað megi…Lesa meira