Fréttir

true

Féll af hestbaki

Slys varð á sunnudaginn skammt frá Helgavatni í Borgarfirði. Maður um sextugt féll af baki þegar hestur sem hann reið fældist. Kallað var eftir aðstoð björgunarsveitar sem mætti á vettvang og fór með manninn í veiðihús við Helgavatn. Þaðan var hann fluttur til aðhlynningar á Heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi. Virðist honum ekki hafa orðið stórlega…Lesa meira

true

Torfærukeppni í Akrafjalli á laugardaginn

Fjórða umferð Íslandsmótsins í torfæru, Bílanaustartorfæran, fer fram í gryfjunum við Fellsenda við Akrafjall laugardaginn 20. júlí næstkomandi. Það er Torfæruklúbbur Suðurlands sem annast framkvæmd keppninnar. Helga Katrín Stefánsdóttir, formaður klúbbsins, á von á harðri keppni og miklum tilþrifum: „Keppnin í sumar hefur verið hörð og þrír ökumenn hafa verið í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.…Lesa meira

true

Tæp 80 prósent virkir á vinnumarkaði eftir starfsendurhæfingu

Nú um mitt árið 2019 hafa rétt yfir 16.000 einstaklingar hafið starfsendurhæfingu á vegum VIRK starfsendurhæfingar frá stofnun starfsendurhæfingarsjóðsins árið 2008. Nú eru 2.600 einstaklingar í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um allt land. Fjárhagslegur og samfélagslegur árangur og ávinningur af starfsemi VIRK er mikill þar sem hún hefur á undanförnum áratug skilað þúsundum einstaklinga í…Lesa meira

true

Öflugri allan leikinn

Víkingur Ó. sigraði Hauka 2-0 þegar liðin mættust í tólftu umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og það voru heimamenn sem voru sterkari allan leikinn. Ólafsvíkingar mættu ákveðnir til leiks, áttu fín færi í upphafi og komust yfir á 13. mínútu. Vidmar Miha skaut að marki utan teigs. Skoti…Lesa meira

true

Keppt í Álmanninum í næstu viku

Keppt verður í Álmanninum svokallaða á Akranesi miðvikudaginn 24. júlí, eftir rétta viku. Álmaðurinn er óhefðbundin þríþrautarkeppni þar sem synt er, hlaupið og hjólað. Keppnin hefst á íþróttasvæðinu við Jaðarsbakka kl. 19:00. Þaðan er hjólað upp að Akrafjalli. Þegar þangað er komið hlaupa keppendur frá Akrafjallsrótum upp á Háahnúk og aftur niður. Því næst er…Lesa meira

true

„Skemmtilegra að keyra heim og horfa á Reykjavík í baksýnisspeglinum“

Júlíus Jónsson fagnaði sjötíu ára afmæli sínu 8. júní í sumar en litlu mátti muna að afmælisbarnið sjálft missti af sinni eigin afmælisveislu sökum mikilla anna í vinnunni. Velta margir fyrir sér af hverju í ósköpunum ástandið hafi verið svoleiðis hjá karlinum. Það vill svo til að fyrsta júní, viku fyrir afmælið, þá tók Júlíus…Lesa meira

true

Kvikmyndahátíðin IceDocs hefst í kvöld

IceDocs er ný kvikmyndahátíð sem fer fram dagana 17.-21. júlí á Akranesi. Hátíðin verður opnuð formlega í kvöld með sýningu á pólsk/íslensku myndinni In Touch. Myndin fjallar um aðflutta Pólverja á Íslandi og samskipti þeirra við ættingja þeirra heima í smábænum Stare Juchy, en þriðjungur bæjarins hefur flutt til Íslands. Á hátíðinni verða sýndar yfir…Lesa meira

true

Samið við ráðgjafa til undirbúnings gagnavers

Niðurstaða fundar Akraneskaupstaðar og Landsvirkjunar sem fram fór nýverið er að Akranes þykir henta mjög vel til að byggja upp hátækni gagnaver. Flutningsnet raforku þykir henta til þess, án þess þó að gengið verði á framtíðar orkuþörf m.a. á Grundartangasvæðinu. Þetta staðfestir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. Hann hefur á liðnum misserum…Lesa meira

true

Ók af stað með dæluna í stútnum

Liðsmenn í Slökkviliði Borgarbyggðar voru kallaðir út á sjötta tímanum í gærkvöldi vegna olíumengunar við eldsneytisdælur Orkunnar á Brúartorgi í Borgarnesi. Einn viðskiptavinur hafði gleymt að taka dæluna úr stútnum áður en hann ók af stað eftir að hafa dælt olíu á bílinn. „Olíugildrur eru á bílastæðunum við dælurnar og þær tóku við megninu af…Lesa meira

true

Þrettán prósent þeirra sem hér býr hefur erlent ríkisfang

Alls voru 46.717 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi 1. júlí síðastliðinn og hefur þeim fjölgað um 2.561 frá 1. desember 2018 eða um 5,8%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi um 0,4%. Erlendir ríkisborgarar eru því 13% mannafla, en alls voru 360.384 búsettir í landinu 1. júlí. Flestir…Lesa meira