
Bilun kom upp í búnaði fjarskiptafyrirtækisins Mílu á Akranesi á þriðja tímanum í dag. Bilunin hefur áhrif á fjarskipti á Akranesi og nærliggjandi svæðum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Mílu. Undirbúningur viðgerðar er hafinn.Lesa meira

Bilun kom upp í búnaði fjarskiptafyrirtækisins Mílu á Akranesi á þriðja tímanum í dag. Bilunin hefur áhrif á fjarskipti á Akranesi og nærliggjandi svæðum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Mílu. Undirbúningur viðgerðar er hafinn.Lesa meira

„Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Mýrasýslu lýsir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Haraldur Benediktsson, setur fram í grein fyrir stuttu þar sem segir: „Sú hugmynd er hér sett fram að áskilja það í innleiðingu orkupakka 3 að setja lagaákvæði um að slík tenging verði aðeins með samþykki þjóðarinnar í sérstakri atkvæðagreiðslu. Sæstrengur…Lesa meira

Eins og áður hefur verið greint frá hafa staðið yfir framkvæmdir á Snæfellsnesvegi um Fróðárheiði síðan í vetur. Verið er að leggja nýjan veg frá Valavatni að vegamótum Útnesvegar Ólafsvíkurmegin. Verkið er í höndum verktakafyrirtækisins Borgarverks ehf. og ganga framkvæmdir vel, að því er fram kemur á Facebook-síðu Snæfellsbæjar. Áætlað er að fyrsta áfanga verði…Lesa meira

Í Samráðsgátt stjórnvalda var síðastliðinn föstudag birt drög að frumvarpi þar sem lagt er til að aflaheimildum í grásleppu verði úthlutað til skipa sem eru með rétt til að veiða grásleppu samkvæmt gildandi lögum. Í núgildandi fyrirkomulagi grásleppuveiða er veiðunum stjórnað á grundvelli leyfa og með dagatakmörkunum, en lagt til að veiðistjórn verði breytt úr…Lesa meira

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við 4-0 tap þegar þeir mættu Álftnesingum í 3. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Bessastaðavelli. Heimamenn fengu óskabyrjun þegar Brandon Nathaniel Wellington kom þeim yfir strax á 1. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og heimamenn því yfir í hléinu. Arnar Már Björgvinsson…Lesa meira

Snæfell vann 5-1 stórsigur á KB þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Stykkishólmi og var leikurinn fjörugur svo ekki sé meira sagt. Snæfellingar komu boltanum þrisvar sinnum í netið í fyrri hálfleik, en öll voru mörkin dæmd af. Gestirnir úr KB skoruðu á 22. mínútu með glæsilegu…Lesa meira

Vaskur hópur hlaupara úr Flandra í Borgarnesi og Borgarfirði tók þátt í Laugavegshlaupinu á laugardaginn. Hlaupið var frá Landmannalaugum og að Þórsmörk. „Hvorki meira né minna en 19 manna hópur á vegum Flandra lagði af stað úr Landmannalaugum kl. 9 í gærmorgun og öll skiluðu sér í mark í Þórsmörk síðdegis,“ segir í frétt á…Lesa meira

Meðfylgjandi mynd var tekin í Borgarfirði síðastliðinn fimmtudag. Þar má sjá bústna bláberjagrænjaxla á lyngi. Svo virðist sem langvarandi þurrkar í sumar hafi ekki haft áhrif á sprettu þeirra, en nú eiga þeir einungis eftir að blána. Gera má ráð fyrir að um eða eftir næstu mánaðamót megi halda til berja víða um vestanvert landið.Lesa meira

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur samþykkt nýja eigandastefnu fyrir jarðir, land, lóðir og auðlindir í ríkiseigu. Var eigendastefnan kynnt á fundi ríkisstjórnar í vikunni sem leið. Ekki hefur áður verið í gildi eigandastefna fyrir þennan málaflokk. Í samræmi við lög um opinber fjármál fer fjármála- og efnahagsráðuneytið með fyrirsvar flestra eigna í eigu ríkissjóðs, þ.m.t. eignarhlut…Lesa meira

Frá 2017 hafa sauðfjárbændur þurft að sætta sig við verulega raunlækkað afurðaverðs vegna sölutregðu og offramleiðslu. Nú er hvorugt til staðar. Sala lambakjöts hefur aukist á þessu ári á sama tíma og dregið hefur úr framleiðslu. Erlendir markaðir hafa opnast og landinn velur sem fyrr lambakjöt á grillið. Ýmsir kjöthlutar, eins og hryggir, eru því…Lesa meira