Fréttir

true

Bókuðu um Sundabraut

„Bæjarráð Akraness fagnar ummælum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að raunhæft sé að bjóða út framkvæmdir við Sundabraut á þessu kjörtímabili og að framkvæmdir geti hafist á næstu þremur til fjórum árum,“ segir í bókun ráðsins frá 3. júlí síðastliðnum. „Bæjarráð Akraness hvetur samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóahafnir og aðra hlutaðeigandi aðila til…Lesa meira

true

Hlíðartúnshúsin fá andlitslyftingu

Að undanförnu hefur verið unnið við lagfæringar á gömlu Hlíðartúnshúsunum í Borgarnesi og þeim gefin verðug andlitslyfting. Hluti húsanna var í niðurníðslu og var sumum þeirra komið í skjól og í geymslu þar sem hægt var að gera þau upp. Verkefni þetta hefur á undanförnum tíu árum fengið styrk frá Húsafriðunarsjóði Minjastofnunar. Þegar blaðamaður kom…Lesa meira

true

Lord of the rings Dalanna

Það getur verið basl að vera bóndi. Það sýndi sig þegar nýgiftur bóndinn hélt rakleiðis út á tún og í heyskap að lokinn giftingarathöfn. Eftir 40 mínútum var hann búinn að týna hringnum! Líklegast er hann nú falinn í einhverri heyrúllunni. Sæþór Sindri Kristinsson og Guðrún B. Blöndal bændur á Valþúfu í Dölum gengu í…Lesa meira

true

Fyrsti hnúðlax sumarsins kominn á land

Fyrsti hnúðlax sumarsins var veiddur í Ölfusá fyrir landi Hrauns í Ölfusi 2. júlí síðastliðinn. Um var að ræða 2,4 kg nýgengna og vel haldna hrygnu. Í kjölfar vaxandi gengdar hnúðlaxa í íslenskar ár sumarið 2017, þegar um 70 hnúðlaxar veiddust í ám víðsvegar um landið, má búast við að talsvert margir hnúðlaxar komi til…Lesa meira

true

Kári fékk dýrmæt stig

Kári vann öruggan sigur á botnliði Tindastóls þegar liðin mættust í 10. umferð í annarri deild karla í Akraneshöllinni í gærkveldi. Er þetta þriðji sigur Káramanna það sem af er af tímabilinu og dýrmæt stig í vegarnesti hjá þeim félögum í botnbaráttunni, nú þegar líða fer á seinni hluta Íslandsmótsins. Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti…Lesa meira

true

Fjórir umsækjendur um embætti sóknarprests

Nýverð var kynnt á vef Þjóðkirkjunnar að fjórir umsækjendur voru um embætti sóknarprests í sameinuðu Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Þeir eru Dagur Fannar Magnússon, Jón Ásgeir Sigurvinsson, Úrsúla Árnadóttir og Þráinn Haraldsson. Prestakallið nær yfir Akranes og Hvalfjarðarsveit. Eins og fram hefur komið fór biskup að tillögu kirkjuþings sem lagði til að Saurbæjarprestakall og prestssetrið í…Lesa meira

true

Markmiðið að móta afburðaskóla og undirbúa byggingu nemendagarða

Á fundi nýrrar stjórnar Menntaskóla Borgarfjarðar í byrjun júní var Hrefna B Jónsdóttir í Hjarðarholti kjörin formaður. Hún segir það spennandi verkefni að koma að borðinu og eiga þátt í að móta framtíð hinnar 12 ára menntastofnunar í héraði. „Menntaskóli Borgarfjarðar var stofnaður 2007 í nýju og einkar glæsilegu húsi. Skólinn hefur frá fyrsta degi…Lesa meira

true

Leshópurinn Köttur úti í mýri opnaði bókamarkað

Í Grundarfirði hefur sárlega vantað bókabúð síðan Hrannarbúðinni var lokað fyrir nokkrum árum. Nú hefur orðið bót á því þar sem að leshópur nokkur, sem telur 15 krafmiklar konur í Grundarfirði, hefur tekið sig til og opnað bókamarkað á neðri hæðinni við Borgarbraut 2. Bókamarkaðurinn á Snæfellsnesi var opnaður föstudaginn 28. júní og er það…Lesa meira

true

Kynning í næstu viku á vindorkugarði

Vegna vinnu við tillögu að matsáætlun vindorkugarðs í landi Sólheima í Laxárdal mun Quadran Íslandi halda kynningarfund fyrir íbúa í Dölum mánudaginn 8. júlí næstkomandi. Fundurinn verður í Dalabúð og hefst kl. 20:00. Þar verður sagt frá stöðu undirbúnings og mat á umhverfisáhrifum verkefnisins og boðið verður upp á kaffiveitingar.Lesa meira

true

Undirbúa útgáfu Skagapassans

Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að tekinn verði upp svonefndur Skagapassi. Hann á að veita aðgang í Akranesvita, sundlaugina á Jaðarsbökkum og Byggðasafnið og geti handhafar hans jafnframt fengið afslátt af matseðli þeirra veitinga- og kaffihúsa á Akranesi sem taka þátt í verkefninu. Bæjarráð samþykkir að passinn verði seldur á 1.500 krónur og…Lesa meira