Fréttir

true

Fjölmenni mætt á setningardegi Norðurálsmót

Norðurálsmótið í knattspyrnu 7. flokks, fyrir sex til átta ára, verður sett á Akranesi nú skömmu fyrir hádegi í dag, en mótinu lýkur á sunnudaginn. Veðurspá lofar góðu og hyggjast margir gestir slá upp tjaldbúðum og dvelja á Skaganum um helgina. Þegar í morgun var mikill fjöldi gesta búinn að koma sér fyrir á tjaldstæðunum…Lesa meira

true

Burst hjá Kára

Kári vann kærkominn sigur á Knattspyrnufélagi Garðabæjar í gærkvöldi þegar liðin mættust í Akraneshöllinni í áttundu umferð annarrar deildar karla í fótbolta. Kári hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og er þetta er annar sigur liðsins í sumar. Fyrsta mark kom strax á 19. mínútu þegar Hlynur Sævar Jónsson kom boltanum framhjá markverði Garðbæinga og…Lesa meira

true

Biðla til íbúa í Hvalfjarðarsveit að spara vatn

Á vef Hvalfjarðarsveitar voru íbúar á veitusvæði Vatnsveitu Hvalfjarðarsveitar á þriðjudaginn beðnir um að fara sparlega með kalda vatnið. Lítið hefur rignt í landshlutanum í nærri tvo mánuði og því miklir þurrkar sem gætu leitt til vatnsskorts, segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Bann við dreifingu matvæla sem innihalda sýklalyfjaónæmar bakteríur

„Með samþykkt breytinga á lögum um dýrasjúkdóma og fleira og þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, á Alþingi í gær, er Ísland fyrsta landið í heiminum sem setur á hreint og klárt bann við dreifingu matvæla sem sýkt eru af salmonellu og kampýlóbakter og sem innihalda ákveðnar tegundir sýklalyfjaónæmra baktería,“ segir Þórarinn Ingi…Lesa meira

true

Gerir upp gamalt hús við Borgarbraut í Borgarnesi

Ellert Gissurarson festi fyrir rétt rúmum fjórum árum kaup á Borgarbraut 48 í Borgarnesi og hefur síðan verið að gera húsið hægt og rólega upp. Notar einkum helgar til verksins. „Ég dunda mér við þetta þegar ég er ekki að vinna,“ segir Ellert um framkvæmdirnar og segir þær hafa dregist örlítið. „Ég ætlaði mér að…Lesa meira

true

Erró og Megas í hópi sýnenda á Snæfellsnesi

Gríðarstór hópsýning myndlistarmanna verður opnuð víðsvegar um Snæfellsnes á morgun, laugardag, og verður opin fram í byrjun september. Formleg opnun sýningarinnar verður í Breiðabliki, miðstöð Svæðisgarðsins Snæfellsness, sem formlega verður opnuð sama dag. Ber sýningin nafnið Nr. 3 Umhverfing og er með nafngiftinni vísað til að Umhverfing flakkar í kringum landið og er afmarkaður landshluti…Lesa meira

true

Guðlaugur opnar ljósmyndasýningu á Stálpastöðum

Undanfarin þrjú sumur hafa ljósmyndasýningar verið á Stálpastöðum í Skorradal. Staðurinn er sérstakur og sýningarsvæðið óvenjulegt þar sem sýnt er undir berum himni, í skjóli hárra trjáa, í og við gömlu hlöðuna sem fyrir hálfri öld þjónaði sem gististaður ungmenna sem unnu við plöntun barrtrjáa á svæðinu. Í ár verður fjórða ljósmyndasýningin á Stálpastöðum. Nú…Lesa meira

true

Nýir eigendur taka við Egils Studio Apartments

Guðrún Björk Sigurjónsdóttir og Kristján Rúnar Kristjánsson hafa tekið við rekstri Egils Studio Apartments að Egilsgötu 6 í Borgarnesi. Þau taka við af Helgu Halldórsdóttur og Gunnari Jónssyni sem stofnuðu fyrirtækið árið 2011. Guðrún Björk og Kristján eru úr Breiðholtinu í Reykjavík og segjast ekki hafa átt neina sérstaka tengingu við Borgarnes fyrr en nú.…Lesa meira

true

Komust í úrslit í handritakeppni leikhúsa

„Langar þig að sjá söguna þín lifna við á leiksviði?“ Þessi spurning var send út til nemenda í 1.-6. bekk grunnskólanna í vetur en þar var á ferðinni keppni á vegum RÚV í samvinnu við Borgarleikshúsið og Leikfélag Akureyrar en leikhúsin munu setja upp verk vinningshafa á næsta leikári. Þessi möguleiki heillaði Dalastúlkurnar Elnu Rut…Lesa meira

true

Faxaflóamót kjölbáta og siglinganámskeið

Íþróttmót verða nokkur á Akranesi um komandi helgi. Fjölmennast verður Norðurálsmótið í knattspyrnu, en auk þess tvö golfmót á Garðavelli. Síðast en ekki síst er Faxaflóamót kjölbáta 2019 sem stendur frá föstudegi til sunnudags. Skúturnar verða ræstar úr Reykjavík klukkan 18 en eðli málsins samkvæmt mun byr ráða komutíma þeirra til Akraness. Á laugardeginum verða…Lesa meira