Fréttir

true

Nýir eigendur taka við Egils Studio Apartments

Guðrún Björk Sigurjónsdóttir og Kristján Rúnar Kristjánsson hafa tekið við rekstri Egils Studio Apartments að Egilsgötu 6 í Borgarnesi. Þau taka við af Helgu Halldórsdóttur og Gunnari Jónssyni sem stofnuðu fyrirtækið árið 2011. Guðrún Björk og Kristján eru úr Breiðholtinu í Reykjavík og segjast ekki hafa átt neina sérstaka tengingu við Borgarnes fyrr en nú.…Lesa meira

true

Komust í úrslit í handritakeppni leikhúsa

„Langar þig að sjá söguna þín lifna við á leiksviði?“ Þessi spurning var send út til nemenda í 1.-6. bekk grunnskólanna í vetur en þar var á ferðinni keppni á vegum RÚV í samvinnu við Borgarleikshúsið og Leikfélag Akureyrar en leikhúsin munu setja upp verk vinningshafa á næsta leikári. Þessi möguleiki heillaði Dalastúlkurnar Elnu Rut…Lesa meira

true

Faxaflóamót kjölbáta og siglinganámskeið

Íþróttmót verða nokkur á Akranesi um komandi helgi. Fjölmennast verður Norðurálsmótið í knattspyrnu, en auk þess tvö golfmót á Garðavelli. Síðast en ekki síst er Faxaflóamót kjölbáta 2019 sem stendur frá föstudegi til sunnudags. Skúturnar verða ræstar úr Reykjavík klukkan 18 en eðli málsins samkvæmt mun byr ráða komutíma þeirra til Akraness. Á laugardeginum verða…Lesa meira

true

Stefnir í metþátttöku í Norðurálsmótinu

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu fer fram á Akranesi um helgina, dagana 21.-23. júní. Mótið er eitt stærsta íþróttamót landsins, ætlað drengjum í 7. flokki, á aldrinum sex til átta ára. „Það stefnir í metþátttöku í ár,“ segir Sigurður Þór Sigursteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA, í samtali við Skessuhorn. „Búast má við því að mikill fjöldi…Lesa meira

true

Æfðu viðbrögð á fjölmennri æfingu í Skorradal

Vegna mikilla þurrka síðan í byrjun maí hefur verið lýst óvissustigi almannavarna á Vesturlandi vegna hættu á gróðureldum. Þá var sömuleiðis í liðinni viku virkjuð viðbragðsáætlun vegna hættu á gróðureldum í Skorradal. Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt…Lesa meira

true

Skagastelpur færðust nær toppnum

ÍA hafði betur gegn Haukum þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær í fimmtu umferð 1. deildar kvenna í fótbolta. Um mikinn baráttuleik var að ræða og jafnræði var í leiknum þar sem bæði lið fengu álitleg marktækifæri. Lítið var þó skorað. Gestirnir úr Hafnarfirði urðu fyrir því óláni á 38. mínútu að skora sjálfsmark…Lesa meira

true

Brynhildur Óla er nýr sóknarprestur í Stafholtsprestakalli

Brynhildur Óla Elínardóttir hefur verið ráðin sóknarprestur Stafholtsprestakalls og tók hún við embætti til eins árs 1. júní síðastliðinn. Brynhildur var áður sóknarprestur í Skeggjastaðaprestakalli austur á Bakkafirði sem svo varð Langanesprestakall, auk þess sem hún gegndi þjónustu á Vopnafirði í tvö ár. „Ég flutti að Skeggjastöðum 1995, vígðist til Skeggjastaðarprestakalls í febrúar 1996 og…Lesa meira

true

Opnunarhátíð Gestastofu Snæfellsness á laugardag

Gestastofa Snæfellsness á Breiðabliki verður opnuð formlega laugardaginn 22. júní næstkomandi. Á sama tíma verður opnuð listsýningin Umhverfing 3 í félagsheimilinu Breiðabliki. Opnunarhátíðin hefst kl. 12:00 og stendur til 14:00. Boðið verður upp á hressingu, myndlist, tónlist og kynningar. Að opnunarhátíð lokinni býður Svæðisgarðurinn Snæfellsnes gestum í leiðsögn um Nesið þar sem skoðaðir verða snæfellskir…Lesa meira

true

Mikil stemning fyrir Hvalfjarðardögum um næstu helgi

Hvalfjarðardagar verða haldnir hátíðlegir um næstu helgi en hátíðin hefur undanfarin ár verið haldin í lok ágústmánaðar. „Breyttur tími hefur átt nokkurn aðdraganda. Ferðaþjónustuaðilar hér í sveitinni hafa beðið um að hátíðin yrði höfð fyrr á sumrin, og margir íbúar hafa verið sama sinnis svo það var ákveðið að prófa þetta,“ segir Ása Líndal Hinriksdóttir,…Lesa meira

true

Ellan markar komu sumarsins í Borgarnesi

Margir Borgnesingar hafa eflaust tekið eftir því að Ellan er nú komin á sinn stað á Brákarpollinn og fyrir marga heimamenn markar það upphaf sumarsins. Fyrir þá sem ekki þekkja er Ellan lítill en fallegur bátur sem á hverju sumri er siglt á Brákarpollinn, rétt fyrir ofan Brákarbrú, af eigendum hennar og meðlimum Stórútgerðarfélags Mýramanna.…Lesa meira