Fréttir

true

Veðurspár fyrir einstök lögbýli nú aðgengilegar á Blika.is

Veðurspákerfið á vefnum blika.is er rekið af Veðurvaktinni ehf. sem er í umsjón Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings og Sveins Gauta Einarssonar, umhverfis- og orkuverkfræðings. Í tilkynningu frá þeim félögum kemur fram að nú gefst notendum veðurspársíðunnar sá möguleiki að fá veðurspá fyrir öll lögbýli landins og fjölmörg eyðibýli að auki. „Með því hafa bæst við yfir…Lesa meira

true

Framkvæmdir hefjast á Kleppjárnsreykjum eftir helgi

Í gær var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Eiríks J Ingólfssonar byggingameistara um byggingu fyrir leikskólann Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum. Útboð vegna framkvæmdanna fór fram í apríl á þessu ári og í kjölfar þess gengið til samninga við Eirík. Í verkinu felst að byrjað verður að rífa gamla heimavistarbyggingu og fyrrum skólastjóraíbúð við grunnskólann á Kleppjárnsreykjum.…Lesa meira

true

Tveir slasaðir eftir bílveltu í Norðurárdal

Seint í gærkvöldi varð bílslys skammt frá Hreimsstöðum í Norðurárdal í Borgarfirði. Bíl var ekið í suðurátt í aflíðandi beygju, fór útaf veginum og valt. Tvennt var í bílnum, íslensk kona og karl, og voru bæði flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Reykjavík. Lögreglan var með mikinn viðbúnað á vettvangi slyssins í gærkvöldi og…Lesa meira

true

Líf í lundi í Reykholtsskógi á laugardaginn

Skógræktarfélag Borgarfjarðar, Skógræktin á Vesturlandi og Félag skógarbænda á Vesturlandi efna í sameiningu til skógardags í Reykholti í Borgarfirði fyrir alla fjölskylduna, laugardaginn 22. júní nk. Ætlunin er að hafa samkomustað í Eggertslundi, en þar verða leikir, plöntuhappdrætti, leiðbeiningar í tálgun og söngur. Farið verður í skógargöngu og boðið uppá veitingar. Samkoman stendur frá klukkan…Lesa meira

true

Markvisst hraðaeftirlit lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi var við hraðaeftirlit með myndavélabíl embættisins í vikunni sem leið. Fimmtudagin 13. júní milli kl. 14:00 og 15:00 var fylgst með hámarkshraða á Ketilsflöt á Akranesi, til móts við leikskólann Akrasel, þar sem hámarkshráði er 30 km/klst. Alls var hraði 105 bíla mældur. Af þeim voru 60 bílar yfir leyfilegum hámarkshraða og…Lesa meira

true

Gestir ánægðir með nýja Lýsuhólslaug

Lýsuhólslaug var opnuð síðastliðinn fimmtudag eftir endurbyggingu. Frágangi er nú að mestu lokið en eftir er m.a. að ganga frá girðingunni og lóð. Nýja laugin er steypt ásamt heitum pottum og fljótlega verður settur upp kaldur pottur. Laugargestir hafa eftir opnun verið ánægðir með vel heppnaðar breytingar og ekki hefur veðrið skemmt upplifun þeirra.  Laugin…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – búið að opna Hvalfjarðargöng

Búið er að draga bíl út úr Hvalfjarðargöngunum sem lokaði þeim fyrr í kvöld. Umferð var beint um Hvalfjörð á meðan. Fyrri frétt: Samkvæmt tilkynningu á bloggsíðu Vegagerðarinnar er lokað fyrir umferð í Hvalfjarðargöngum. Þar er bilaður bíll sem gengur illa að ná út úr göngunum. Umferð er nú beint um Hvalfjörð og er meðal…Lesa meira

true

Blíða laus af skerinu

Um klukkan hálf eitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út þegar fjölveiðiskipið Blíða SH steytti á skeri hálfa aðra sjómílu frá Stykkishólmi, skammt frá Hvítbjarnarey. Björgunarbátur frá Stykkishólmi var kominn á vettvang skömmu síðar og þá kom björgunarskipið Björg frá Rifi einnig á vettvang, sem og eftirlits- og sjómælingaskipið Baldur. Aðgerðum á…Lesa meira

true

Veður er gott á strandstað

Eins og fyrr segir strandaði bátur skammt frá Stykkishólmi í hádeginu í dag. Landhelgisgæslan var að senda svohljóðandi tilkynningu: „Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning klukkan 12:36 um 24 metra langt fiskiskip sem hafði steytt á skeri á Breiðafirði um 1,3 sjómílur ANA af Stykkishólmi. Berserkir, Björgunarsveit Slysvarnafélagsins Landsbjargar ásamt björgunarskipinu Björg í Rifi voru kölluð út…Lesa meira

true

Skip strandað skammt frá Stykkishólmi

Um klukkan hálf eitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út vegna skips sem strandað hafði rétt utan við Stykkishólm. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu er skipið staðsett um 1,5 sjómílu frá bænum, nærri Hvítabjarnarey. Um er að ræða 22 tonna fjölveiðiskip. „Björgunarbátur frá Stykkishólmi var komin á vettvang stuttu síðar, staðan um borð…Lesa meira