Fréttir

true

Stykkishólmur cocktail weekend um næstu helgi

Kokteilahátíðin „Stykkishólmur cocktail weekend“ verður haldin í fyrsta skipti um næstu helgi. Hátíðin verður dagana 8.-9. júlí og taka helstu barir og veitingastaðir bæjarins þátt í gleðinni. Félagarnir Jón Viðar og Ívar Sindri standa fyrir hátíðinni en þeir hafa báðir starfað sem barþjónar hérlendis og í London þar sem þeir lögðu stund á barfræðin í…Lesa meira

true

Byrjunin lofar góðu í Laxá í Dölum

„Opnunin í Laxá í Dölum skilaði fleiri löxum en elstu menn muna. Þetta var gríðarlega skemmtilegt,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir í samtali við tíðindamann Skessuhorns. Laxinn hefur verið að skila sér á flesta staði og mikið af honum sumsstaðar. ,,Laxinn er dreifður um alla á og nýr lax að ganga inn. Stórlaxar í bland við…Lesa meira

true

Vilja flýta rétt um viku

Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar í Lundarreykjadal hefur óskað eftir heimild til að flýta réttinni í haust um viku, þannig að hún verði 7. september í stað þess 14. Í erindi fjallskilanefndar til byggðarráðs kemur fram að gróður er snemmsprottinn þetta sumarið en við þær aðstæður sölna grös fyrr á láglendum heiðum og lömb gætu því tekið að…Lesa meira

true

Körfuboltasumarið á ferð um Vesturland

Snemmsumars setti Körfuknattleikssamband Íslands á laggirnar Körfuboltasumarið, verkefni sem ætlað er að efla iðkun körfuknattleiks yfir sumartímann. Nær það yfir sumrin 2016 og 2017 og er styrkt af þróunarsjóði FIBA, Alþjóða körfuknattleikssambandsins. Einn liður verkefnisins felur í sér að A-landsliðsfólk Íslands heimsæki þau félög sem bjóða upp á sumaræfingar eða námskeið. Dagana 4.-9. júlí verður…Lesa meira

true

Harma hægagang við lagningu þriggja fasa rafmagns

Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna hægagangs við lagningu þriggja fasa rafmagns um héraðið, meðal annars á Mýrum. Fram kom á fundi ráðsins síðastliðinn fimmtudag að samkvæmt upplýsingum frá RARIK liggi fyrir að það muni að óbreyttu taka um 20 ár að ljúka þessu verki. „Það er verri staða en víða annarsstaðar á landinu.…Lesa meira

true

Dagur íslenska fjárhundsins verður 18. júlí

Haldið verður upp á dag íslenska fjárhundsins mánudaginn 18. júlí nk. Meðal þess sem boðið verður uppá er málþing sem haldið verður í Þjóðminjasafninu í Reykjavík til heiðurs Íslandsvininum Mark Watson, en hann var fæddur þennan dag árið 1906. Á sínum tíma heillaðist Watson af íslenska fjárhundinum og ákvað að bjarga honum frá útrýmingu og…Lesa meira

true

Laxinn farinn að taka í Andakílsá

„Það eru komnir ellefu laxar á land og veiðimenn sem voru um daginn sáu vænan fisk í veiðistað fjögur,“ sagði Lára Kristjánsdóttir í árnefnd Andakílsár í Borgarfirði í samtali við tíðindamann Skessuhorns. Veiðin fer því vel af stað þar um slóðir. En þeir Maggi og Geiri voru í Andakílsá fyrir fáum dögum og settu í…Lesa meira

true

Hljómsveitin Ösp gefur út sitt fyrsta lag

Hljómsveitin Ösp, sem skipuð er þeim Kristni Braga Garðarssyni og Eiði Andra Guðlaugssyni, sendi frá sér sitt fyrsta frumsamnda lag á dögunum ásamt myndbandi. Báðir hafa þeir stundað nám við Tónlistarskóla Akraness. „Þetta er fyrsta lagið sem við tökum upp í stúdíói og gefum út, lagið heitir Simple Role og er frekar sorglega saga af…Lesa meira

true

Smáhýsi reist á Arnarstapa og þjónustumiðstöð á teikniborðinu

Snjófell ehf. sem á og rekur Arnarbæ á Arnarstapa er um þessar mundir að koma fyrir smáhýsum á lóð fyrirtækisins. Nú eru komin upp fjögur smáhýsi sem verða tilbúin um næstu mánaðamót. Sverrir Hermannson er eigandi og framkvæmdastjóri Snjófells. Hann sagði í samtali við Skessuhorn að alls verði ellefu smáhýsi reist. „Þetta eru heilsárshús og…Lesa meira

true

„Ég ákvað það eftir að hafa unnið hérna að ég vildi verða prestur“

Árið 1923 ákváðu nokkrir drengir að ganga frá Reykjavík og til Vatnaskógar í Svínadal til þess að tjalda. Þessir drengir voru á vegum KFUM og KFUK. 93 árum síðar eru sumarbúðirnar enn í fullum gangi og hundruð drengja sækja sumarbúðirnar ár hvert. Sumarbúðirnar eru aðallega fyrir stráka og þeim skipt í flokka eftir aldri. Yngstu…Lesa meira