
Laxveiðitímabil sumarsins hófst að venju í Norðurá í Borgarfirði. Það var Guðrún Sigurjónsdóttir á Glitstöðum, formaður Veiðifélags Norðurár, sem setti í morgun í fyrsta lax sumarsins, 74 cm nýgengna hrygnu. Var þetta jafnframt Maríulax Guðrúnar. Fleiri fiskar komu síðan á land í kjölfarið. Guðrún veiddi laxinn neðan við Laxfoss. Vegna vatnsleysis í ánni eru nokkrir…Lesa meira








