Fréttir

true

Sóttkvíarskimun á Akranesi

Fyrr í dag gafst fólki sem hafði verið sjö daga í sóttkví vegna Covid-19 kostur á að mæta í sýnatöku á Akranesi. Skimunin fór fram á sjúkrabílastöðinni við Þjóðbraut. Þar stóðu vaktina þau Rósa Marinósdóttr, sviðsstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Gísli S. Björnsson, yfirmaður sjúkraflutninga og Fannar Sólbjartsson sjúkraflutningamaður. Þar gátu þeir sem höfðu…Lesa meira

true

Áður kynntar varúðarráðstafanir áfram í gildi

Viðbragðsteymi Stykkishólmsbæjar fundaði með aðgerðarstjórn almannavarna á Vesturlandi í dag í ljósi vaxandi smita COVID-19 síðustu daga. Síðasta sólahring hafa greinst tvö ný smit tengd Stykkishólmi, annar einstaklingurinn var í sóttkví í Stykkishólmi en hinn er með lögskráningu í Stykkishólmi en dvelur í Reykjavík. Í Stykkishólmi eru nú 11 skráðir með staðfest smit og í…Lesa meira

true

Suðaustan hvassviðri eða stormur fylgir lægðarkomu í nótt

Spáð er suðaustan 13-18 m/s með hviðum yfir 30 m/s staðbundið við Faxaflóa seint í kvöld og til morguns, enn hvassara verður við Breiðafjörð, eða 18-25 m/sek og upp í 40 m í hviðum. Veðurstofan hefur því gefið út gula viðvörun vegna roks og úrkomu sem lægðinni fylgir. „Slíkar aðstæður skapa hættu þeim ökutækjum sem…Lesa meira

true

Vefurinn island.is í endurbættri útgáfu

Vefurinn island.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Hann hefur nú verið opnaður í nýrri og endurbættri útgáfu með það að markmiði að gera viðmót gagnvart notendum skýrara og betra. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að á vefnum verði auðvelt að finna það sem leitað er að og eru þrjár meginleiðir til þess.…Lesa meira

true

Þrettán nú smitaðir á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi var að birta tölur um fjölda smitaðra af Covid 19 í landshlutanum. Þeir eru nú 13 talsins og þar af 11 í Stykkishólmi. Einn er smitaður á Akranesi og á starfssvæði HVE í Borgarnesi hefur einn smitaður bæst í hópinn frá í gær. Í sóttkví í landshlutanum eru nú 102; 24 í…Lesa meira

true

Reiknar með eðlilegu skólahaldi í næstu viku

Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, stefnir á að skólahald verði með eðlilegu móti í næstu viku og að bóknámsnemendur megi þá mæta að nýju í skólann sinn. „Eins og staðan er núna í smitútbreiðslu hér á Skaga tel ég ekki ástæðu til að halda úti fjarkennslu lengur í FVA. Ef smitum fjölgar…Lesa meira

true

Fimm ný smit á Vesturlandi í dag

Samkvæmt Covid19 vefnum eru nú 16 einstaklingar í einangrun með veiruna á Vesturlandi og 102 eru í sóttkví. Það er fjölgun um fimm einstaklinga frá því í gær. Ekki hafa enn borist upplýsingar um hvar í landshlutanum þessi nýju smit eru, en samkvæmt heimildum Skessuhorns eru þó tvö þeirra í Stykkishólmi og annar þeirra dvelur í…Lesa meira

true

ASÍ telur að forsendur lífskjarasamninga hafi staðist

Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög þess telja ekki tilefni til að segja upp kjarasamningum á þessum tímapunkti. Í tilkynningu frá ASÍ segir að lífskjarasamningarnir sem undirritaðir voru 4. apríl 2019 hvíli á þremur forsendum, þ.e. að kaupmáttur hafi aukist á samningstímanum, að vextir hafi lækkað fram að endurskoðun samningsins og að stjórnvöld hafi staðið við gefin…Lesa meira

true

Tilraunaveiðar á humri hafnar á Breiðafirði

Tilraunaveiðar á humri í gildrur eru hafnar á Breiðafirði. Þær verða stundaðar á bátnum Ingu P SH-423. Skipstjóri er Klemens Sigurðsson en útgerðarfélagið Kvika hefur tekið að sér veiðarnar fyrir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum. Á mánudagskvöldið var 71 gildra lögð norður af Bárðargrunninu. Fyrst voru gildrurnar lagðar án beitu til prufu, en síðan var dregið og…Lesa meira