Fréttir

true

Atvinnuleysi er að nálgast tíu prósent

Heildaratvinnuleysi í ágústmánuði var 9,4%, að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar. Almennt atvinnuleysi var 8,5%, sem er nokkur aukning frá fyrri mánuðum, en atvinnuleysi var 7,9% í júlí, 7,5% í júní og 7,4% í maí. Vinnumálastofnun spáir því að almennt atvinnuleysi aukist lítið eitt í september, en meira þegar lengra er komið fram…Lesa meira

true

Í fjöruhreinsun í átthagafræðináminu

Þemadagar í átthagafræði á mið- og unglingastigi í Grunnskóla Snæfellsbæjar voru dagana 9. og 10. september. Ýmis verkefni tengd námsskrá skólans í átthagafræði voru unnin þessa daga og lögð áhersla á upplifun og útiveru. Nemendur í 6. og 7. bekk fóru t.d. í fjöruferð á Fróðárrif þar sem þeir tíndu rusl úr fjörunni og af…Lesa meira

true

Hópsýking í Stykkishólmi

Búið er að staðfesta smit af Covid-19 hjá sjö íbúum í Stykkishólmi. Eru þeir allir í einangrun, þar af einn í Reykjavík. Allir þessir einstaklingar tengjast og hafa umgengist hóp af fólki. Alls voru 18 einstaklingar í sóttkví í Stykkishólmi í fyrradag, en hluti þeirra hefur nú þegar útskrifast úr henni. Í ljósi fjölgunar smita…Lesa meira

true

Býðst að hefja nám á miðri önn

Háskólinn á Bifröst hefur ákveðið að bjóða fólki að hefja háskólanám nú á haustmánuðum. Í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu opnar skólinn fyrir möguleika á námi í seinni lotu haustannar sem hefst mánudaginn 19. október nk. „Boðið verður upp á einingabær námskeið bæði í grunn- og meistaranámi sem nýtast í áframhaldandi nám eða símenntun. Nemendur geta…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum kjúklingi vegna gruns um salmonellu. Reykjagarður hf. hefur stöðvað sölu og innkallar af markaði eina lotu af kjúklingi. Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi rekjanleikanúmers: Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónu kjúklingur (Heill fugl, bringur, lundir, bitar) Rekjanleikanúmer: 001-20-33-1-02 Dreifing: Iceland verslanir, Hagkaupsverslanir, Krónan, KR, Kjarval, Nettó, Costco, Extra24, Heimkaup, Kaupfélag…Lesa meira

true

Stal „löggubíl“ og ók á brott

Haft var samband við Lögregluna á Vesturlandi að morgni mánudags og tilkynnt um innbrot í Grunnskóla Grundarfjarðar. Lögregla kannaði málið og við eftirgrennslan hennar kom í ljós að sami aðili hafði farið inn í læsta aðstöðu kvikmyndafyrirtækis, sem nú er við tökur á sjónvarpsþáttaröð í Grundarfirði og tekið þar bíllykla ófrjálsri hendi. Lyklarnir voru að…Lesa meira

true

Birta tölur að nýju og loka lögreglustöðvunum

Mikill erill hefur verið hjá lögreglu undanfarna viku vegna uppgangs Covid-19 faraldursins. Eins og kunnugt er hafa smit greinst á nokkrum stöðum í landshlutanum og víða um Vesturland hefur fólk þurft að sæta sóttkví og einangrun vegna faraldursins. Vegna þessa hyggst Lögreglan á Vesturlandi ætla að fara að birta tölur með yfirliti yfir smit í…Lesa meira

true

Viðamikil náttúrufræðirannsókn gerð að Reykjum í Ölfusi

Landbúnaðarháskóli Íslands tekur þátt í stóru Evrópuverkefni, Future Arctic, sem hlotið hefur 700 milljóna króna styrk til fjögurra ára. Um er ræða stóra rannsókn á þurrlendisvistkerfum. Markmið verkefnisins er að skoða hvernig íslenskt graslendi og skógar bregðast við breytingum í loftslagi og loftgæðum. Í verkefninu er rannsóknaraðstaða skólans að Reykjum í Ölfusi nýtt til þjálfunar…Lesa meira

true

Ellefu með veiruna á Vesturlandi

Í gær greindust 38 ný kórónaveirusmit í landinu. Á landinu öllu eru 281 með veiruna og 2.283 í sóttkví. Hér á Vesturlandi hefur tala smitaðra hækkað um helming frá í gær, en nú eru ellefu í landshlutanum sýktir og 196 eru í sóttkví. Stór hluti þeirra sem nú eru í sóttkví á Vesturlandi eru á…Lesa meira

true

Fjármagna saman kaup á tveimur milljónum skammta af bóluefni

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX). Noregur og Ísland leggja í sameiningu fé til verkefnisins sem gerir kleift að fjármagna kaup á allt að tveimur milljónum bóluefnaskammta fyrir lágtekjuþjóðir. Þetta kemur fram…Lesa meira