Fréttir

true

Dýpktunarframkvæmdir í höfnum Snæfellsbæjar

Þessa dagana er sanddæluskipið Dísa að dýpka í Ólafsvíkurhöfn. Björn Arnaldsson hafnarstjóri segir í samtali við Sksesuhorn að dælt verði 50 þúsund rúmmetrum úr innsiglingunni í höfnina og innan hafnar auk þess sem dæla á tíu þúsund rúmmetrum í uppfyllinguna við Norðurgarð. Þegar þessu verki lýkur mun Dísa halda til Rifs en þar er áætlað…Lesa meira

true

Fjöldi þarf að aka til Reykjavíkur á morgun til skimunar

Um 170 manns á Akranesi þurfa á morgun, þriðjudag, að mæta í skimun í kjölfar fimm daga sóttkvíar eftir að hafa verið í nálægð við einhvern sem smitaður hefur verið af Covid-19. Athygli vekur að þessum fjölda fólks verður ekki gert kleift að mæta í skimun á Akranesi, heldur þarf að koma sér til Reykjavíkur…Lesa meira

true

Á þriðja hundrað í sóttkví á Vesturlandi

Í gær greindust 30 innanlandssmit í landinu af Covid-19, af 1.512 sýnum sem tekin voru. Öll smitin greindust í einkennasýnatöku. 224 eru nú í einangrun á landsvísu, 2.102 í sóttkví og tveir eru á sjúkrahúsi með veiruna. Hér á Vesturlandi eru nú fimm einstaklingar greindir með veiruna í þessari þriðju bylgju faraldursins. Auk þess eru…Lesa meira

true

Telja slysahættu þar sem nýr vegur mætir þeim gamla

Verktakafyrirtækið Þróttur er um þessar mundir að ljúka við uppbyggingu 3,7 km veghluta í Skorradal, frá Vatnsenda og austur fyrir hæðina við Dagverðarnes. Nýja vegarkaflanum lýkur í brekku á lítilli blindhæð þar sem hann mætir gamla veginum. Íbúar og sumarhúsaeigendur í Fitja- og Dagverðarneslandi hafa sent áskorun til Vegagerðarinnar og hreppsnefndar Skorrdalshrepps um að beita…Lesa meira

true

Sóttu knapa á þyrlunni

Maður féll af hestbaki skammt frá Hellissandi síðastliðinn laugardag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á öðrum tímanum til að sækja manninn, að beiðni Lögreglunnar á Vesturlandi. Lenti hún á flugvellinum í Rifi kl. 14:23 og flutti manninn til Reykjavíkur. Ekki er vitað hvort áverkar mannsins eru alvarlegir.Lesa meira

true

Hafa opnað staðreyndavakt um stjórnarskrármál

Samand ungra Sjálfstæðismanna hefur sett á laggirnar staðreyndavakt um íslensku stjórnarskrána, breytingar á stjórnarskránni, breytingatillögur og annað sem að stjórnarskránni snýr. Finna má staðreyndavaktina á vefsíðunni www.stjornarskra.com „Með staðreyndavaktinni vill SUS leggja sitt af mörkum til að umræða um stjórnarskrármál sé byggð á því sem rétt er og finna má stoð fyrir á vef Alþingis…Lesa meira

true

Óskað eftir fólki á skrá í bakvarðaveit heilbrigðisþjónustunnar

Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar var sett á fót í upphafi COVID-19 faraldursins í vor þegar…Lesa meira

true

Frumvarp um einnota drykkjarvöruumbúðir

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar nú eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Það hefur verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda og er athugasemdafrestur til 3. október. Með frumvarpinu er ætlunin að fylgja eftir hluta þeirra tillagna sem fram koma í skýrslu starfshóps…Lesa meira

true

Sigraðar á Sauðárkróki

Skagakonur máttu játa sig sigraðar gegn toppliði Tindastóls, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Sauðárkróki á laugardaginn og lauk leiknum með 2-0 sigri heimaliðsins. Það var Lára Mist Baldursdóttir sem kom Tindastóli yfir á 34. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og Stólarnir því 1-0…Lesa meira

true

Skallagrímskonur eru Meistarar meistaranna

Skallagrímur sigraði Val, 74-68, þegar leikið var um titilinn Meistarar meistaranna í körfuknattleik kvenna. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Nokkur haustbragur var á leik liðanna framan af leik. Lítið var skorað í upphafi og staðan var 2-2 eftir þrjár mínútur. Liðin tóku þó við sér eftir því sem leið á og Valur leiddi 14-17…Lesa meira