Fréttir

true

Horfið verður til heimanáms næstu viku í FVA

Í dag var haldinn fundur menntamálaráðherra og skólastjórnenda framhaldsskólanna. Rætt var um viðbrögð við nýrri bylgju smita vegna COVID-19. „Ekki hefur verið lagt til að breyta núgildandi sóttvarnarreglum á landsvísu en í ljósi þess að smit er á sveimi á Skaganum, og beðið þess að hægt sé að taka sýni úr nemendum FVA í sóttkví,…Lesa meira

true

Fjórir smitaðir á Vesturlandi og 26 í sóttkví

Í gær voru greind 38 ný smit af Covid-19 innanlands. Það er helmingi minna en daginn áður, en mun færri sýni voru tekin í gær. 21 af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu. Á landsvísu eru nú 215 í einangrun og 1.290 í sóttkví. Tveir liggja á sjúkrahúsi. Hér á Vesturlandi…Lesa meira

true

Leikur meistara meistaranna verður án áhorfenda

Að beiðni almannavarna, um að íþróttahreyfingin sýni frumkvæði varðandi sóttvarnir, ákvað stjórn Körfuknattleikssambands Íslands að leikir helgarinnar í meistaraflokkum, það er æfingaleikir meistaraflokka og meistarar meistaranna í kvennaflokki, fari fram án áhorfenda. Jafnframt var því beint til foreldra/aðstandenda leikmanna í yngri flokkum að mæta ekki í íþróttahúsin til að horfa á þá leiki sem fram…Lesa meira

true

Kóvidfaraldurinn kominn á fullan skrið að nýju

Fjöldi greindra kórónuveirusmita í landinu tók heljarstökk í gær, þegar 75 ný smit greindust innanlands. Svo mörg smit hafa ekki verið greind á einum degi frá því 1. apríl síðastliðinn, þegar 99 smit voru greind á einum degi. Helmingur þeirra sem greindust í gær höfðu verið í sóttkví. Í gær voru tekin um 4.100 sýni…Lesa meira

true

35 býli taka þátt í tilraunaverkefni um heimaslátrun sauðfjár

Tilraunaverkefni um heimaslátrun sauðfjár er farið af stað og taka samtals 35 býli, víðsvegar um landið, þátt í verkefninu. Markmið þess er að leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur…Lesa meira

true

Lögð áhersla á að vernda sem best viðkvæmustu hópana

Starfsmenn velferðarsviðs Akraneskaupstaðar og aðrir forsvarsmenn bæjarins hafa fundað í dag og undirbúið aðgerðir í ljósi þess að einstaklingur með Covid-19 smit fór í líkamsræktarstöðina á Jaðarsbökkum síðastliðinn þriðjudag. „Við höfum lagt áherslu á að upplýsa alla hlutaðeigandi um næstu aðgerðir,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. Hann segir að búið sé…Lesa meira

true

Allir sem fóru í ræktina á Jaðarsbökkum á þriðjudag fari í sóttkví

Einstaklingur sem greinst hefur með Covid-19 hafði stundað líkamsrækt í líkamsræktarstöðinni á Jaðarsbökkum á Akranesi þriðjudaginn 15. september síðastliðinn. Þetta staðfestir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. „Allir sem sóttu líkamsræktina sem iðkendur umræddan dag þurfa að fara í sóttkví til og með þriðjudeginum 22. september nk. Viðkomandi losnar úr sóttkví í framhaldinu…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar voru afhentar í gær

Árlegar umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar voru afhentar í gær fyrir snyrtimennsku við hús og lóðir í sveitarfélaginu auk þess sem hvatningarverðlaun voru veitt. Það voru þær Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, varaformaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar, sem afhentu viðurkenningarnar. Sem fyrr er það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem hafði forgöngu um verkefnið; auglýsti eftir tilnefningum,…Lesa meira

true

Heimsóknarreglur á Höfða uppfærðar

Á föstudag var tekin ákvörðun um að herða heimsóknarreglur á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Heimsóknir verða aðeins leyfðar í tvær klukkustundir á dag, eða milli kl. 14:00 og 16:00 og aðeins einn má heimsækja heimilismann. Þær heimsóknir mega ekki fara fram inni á sameiginlegum svæðum heimilisins, eingöngu á herbergjum heimilismanna. Allir gestir eru…Lesa meira

true

Tveir nýir veiðieftirlitsmenn í Stykkishólmi

Fiskistofa réði nýverið sex nýja eftirlitsmenn til starfa í stað eldri starfsmanna sem látið hafa af störfum. Tveir þessara nýju veiðieftirlitsmanna voru ráðnir á starfsstöð stofnunarinnar í Stykkishólmi, en það eru þeir Jón Bek og Ríkarð Ríkarðsson. Fiskistofa er með starfsstöðvar á sex stöðum á landinu og dreifast nýju eftirlitsmennirnir á höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri…Lesa meira