Fréttir

true

Sjávarútvegsfyrirtækin skiluðu góðum hagnaði í fyrra

Rekstur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja gekk vel á síðasta ári. Þetta kom fram í kynningu sem Deloitte hélt á Sjávarútvegsdeginum 2020, sem var í morgun. Sjávarútvegsdagurinn er samstarfsverkefni Samtaka atvinnulífsins, Deloitte og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Niðurstaða þessi byggist á ársuppgjörum fyrirtækja sem hafa yfir að ráða tæplega 90% af úthlutuðu aflamarki og er skalað upp í…Lesa meira

true

„Hugsaðu stórt en byrjaðu smátt, þannig gerast hlutirnir“

„Ég komst að því núna fyrir nokkrum dögum að ég á rætur í Grundarfirði. Langamma mín fæddist hérna, í Gröf í Grundarfirði, en faðir minn ólst upp í Kolbeinsstaðahreppi. Bróðir minn var að skrifa ævisögu hans og þar komst ég að þessu með langömmu, að ég ætti rætur hér,“ segir Ágúst í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Hvassviðri spáð um vestanvert landið í dag

Í dag og fram til miðnættis er spáð vaxandi sunnanátt á landinu. Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir Faxaflóa, Vestfirði, Breiðafjörð og miðhálendið í dag og fram á kvöldið. Búast má við hvassviðri við fjöll t.d. á norðanverðu Snæfellsnesi. Það verða 13 til 20 metrar á sekúndu vestantil seinnipartinn, annars 8 til 15 m/sek. Rigning…Lesa meira

true

„Hún er jafn mikið barnið okkar eins og hinar dætur okkar“

Í byrjun mars 2016 biðu Silja Rut Thorlacius og Hrafn Einarsson spennt eftir sínu öðru barni þegar öllu var snúið á hvolf á augabragði. Föstudagsmorguninn 4. mars fór Silja í mæðraskoðun þar sem í ljós kom að enginn hjartsláttur heyrðist hjá dóttur þeirra. Hún var strax send upp á fæðingadeild þar sem staðfest var að…Lesa meira

true

Meistarar meistaranna krýndir á sunnudag

Hinn árlegi leikur um Meistara meistaranna í körfuknattleik kvenna fer fram næstkomandi sunnudagskvöld. Að þessu sinni verður leikið í Borgarnesi, þar sem bikarmeistarar Skallagríms mæta deildarmeisturum Vals. Venjulega hafa í þessum leik mæst bikarmeistarar og Íslandsmeistarar, en þar sem enginn Íslandsmeistari var krýndur á síðasta keppnistímabili leika deildarmeistararnir gegn bikarmeisturnum að þessu sinni. Enn fremur…Lesa meira

true

Síðasta slitlagið lagt á nýjan veg yfir Fróðárheiði

Eftir hádegi í dag lauk stórum áfanga í samgöngusögu Snæfellinga. Lagt var bundið slitlag á síðasta kafla nýja vegarins yfir Fróðárheiði. Nú er einungis eftir lokafrágangur í kringum vegstæðið. „Þessu fögnum við,“ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar í færslu á Facebook, en hann tók meðfylgjandi mynd. Eins og rifjað var upp í Skessuhorni í síðustu…Lesa meira

true

Landssöfnun á birkifræi að hefjast

Nú í haust verður birkifræi safnað um allt land og því dreift á völdum, beitarfriðuðum svæðum í öllum landshlutum. Það eru Skógræktin og Landgræðslan sem hafa tekið höndum saman um verkefnið og óska eftir stuðningi landsmanna við að breiða birkiskóga landsins út. Formlega hefst söfnunin á degi íslenskrar náttúru, á morgun 16. september, en söfnunin…Lesa meira

true

Næturvinna í göngunum

Vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum næstu nætur eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og tillitssemi. Vinna fer fram á nóttunni milli kl. 22:00 og 6:30 yfir fjögurra vikna tímabil frá og með síðasta sunnudegi. Áætluð verklok eru 15. október næstkomandi.Lesa meira

true

Ráðin forstjóri Elkem Ísland

Álfheiður Ágústsdóttir hefur tekið við starfi forstjóra Elkem Ísland á Grundartanga. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Einar Þorsteinsson, fráfarandi forstjóri, hafi af persónulegum ástæðum óskað eftir því að draga úr vinnuframlagi sínu og ábyrgð. Einar mun þó taka sér stöðu við hlið nýráðins forstjóra sem ráðgjafi á sviði orkumála og vinnumarkaðar. Álfheiður Ágústsdóttir…Lesa meira

true

Björn og Hlédís í verkefnastjórn um landbúnaðarstefnu

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað verkefnastjórn um landbúnarðarstefnu fyrir Ísland. Í stjórninni sitja Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og alþingismaður og Hlédís Sveinsdóttir ráðgjafi og verkefnastjóri. Með stjórninni starfa Bryndís Eiríksdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, og Sigurgeir Þorgeirsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri. „Í tengslum við vinnu samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga lét ráðherra KPMG vinna…Lesa meira