Fréttir

true

Jörð skelfur á Suðurnesjum – skjálftinn fannst greinilega á Akranesi

Öflugur jarðskjálfti upp á 4,6 stig á Richterskvarða varð um tvo km. suðaustan við Keili á Reykjanesi um klukkan 16:15 í dag. Þetta er þriðji skjálftinn sem mælist á svæðinu í dag, en sá síðasti upp á 3,7 stig varð austur af Fagradalsfjalli um kl. 13:45. Skjálftinn nú á fimmta tímanum fannst greinilega á Akranesi,…Lesa meira

true

Nýtt fimleikahús tekið í notkun

Fimleikafélag Akraness hóf formlega æfingar í nýju fimleikahúsi við Vesturgötu á mánudaginn. Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikafélags Akraness, segir nýju aðstöðu félagsins langþráða. „Við vorum ekki á pari við önnur fimleikafélög í landinu og gátum ekki boðið okkar iðkendum upp á þá aðstöðu sem þarf fyrir keppendur í fimleikum.” Fimleikafélagið hefur aðstöðuna alla daga á milli…Lesa meira

true

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur og hlutabótaleiðin framlengd

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp félagsmálaráðherra um breytingu á lögum er varða vinnumarkaðinn til að mæta efnahagslegum áhrifum Covid-19 heimsfaraldursins. Með frumvarpinu mun réttur til tekjutengdra atvinnuleysisbóta fara úr þremur mánuðum í sex mánuði, enda séu ákveðin skilyrði uppfyllt. Hlutabótaleiðin verður sömuleiðis framlengd um tvo mánuði. Greiðslur launa vegna einstaklinga í sóttkví munu einnig halda…Lesa meira

true

Fékk gæsahúð að upplifa mikla samkennd og stuðning íbúa Stykkishólms

Síðastliðinn laugardag var boðað til áheitahlaups í Stykkishólmi til stuðnings Berglindi Gunnarsdóttur, 27 ára körfuboltakonu úr Snæfelli og læknanema við HÍ. Berglind slasaðist á hálsi og mænu í rútuslysi í byrjun þessa árs og er nú í stífu endurhæfingarverkefni. Mikið keppnisskap hefur hjálpað henni í gegnum hennar endurhæfingu, en þó er enn langt í land…Lesa meira

true

Vilja undanþágu þannig að 150 manns megi mæta í hverja rétt

Á fundi fjallskilanefndar Borgarbyggðar í gær voru kynntar leiðbeiningar vegna gangna og rétta og ýmsar takmarkanir sem verða nú í haust vegna sóttvarna útaf COVID-19. Í leiðbeiningunum kemur m.a. fram að sveitarstjórnir beri ábyrgð á framkvæmd gangna og rétta og ber þeim að tryggja að reglum um sóttvarnir verði fylgt. Fjallskilanefnd Borgarbyggðar leggur til að…Lesa meira

true

Átakinu „íslenska er allskonar“ hrundið af stað

Í dag, miðvikudaginn 26. ágúst, hefst átak á vegum Almannaróms og Háskólans í Reykjavík þar sem einstaklingar sem hafa íslensku sem annað mál eru hvattir til að lesa setningar inn í gagnasafnið samrómur.is, sem notað verður til að þróa máltækni sem kennir tölvum og tækjum að skilja íslensku. Átakið íslenska er allskonar er sett af…Lesa meira

true

Umturnuðu heimili sínu áður en þau fluttu inn

Rakel Jóhannsdóttir og Jónbjörn Bogason hafa hvergi setið auðum höndum síðan þau festu kaup á Kveldúlfsgötu 1 í Borgarnesi árið 2017. Rakel segir verkefnið, eins og hún lýsir eigninni þeirra hjóna, vera stöðugt. Hún leggur íslensk ræktuð kirsuber frá Svanshóli í Bjarnafirði á Ströndum á borðið fyrir blaðamann Skessuhorns sem forvitnast um framkvæmdir hússins síðustu…Lesa meira

true

Lætur vita af sér með kaffibollamynd á hverjum degi

Helga Ólöf Oliversdóttir, sjúkraliði á Akranesi, sá það í byrjun Covid-faraldursins síðasta vor að veiran myndi hafa afgerandi áhrif á samskipti og daglegar venjur fólks. Í stað þess að hitta vini sína daglega, til dæmis í skipulögðum gönguferðum, yrði minna úr slíkum mannlegum samskiptum. Sjálf ákvað hún að fara í sjálfskipaða sóttkví. Því fer hún…Lesa meira

true

Atvinnuleitendum gert mögulegt að fara í nám án þess að greiðslur falli niður

Atvinnuleitendum verður gert kleift að hefja nám og fá fullar atvinnuleysisbætur í eina önn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Eftir fyrstu önnina tekur Menntasjóður námsmanna við. Frítekjumark vegna skattskyldra tekna einstaklinga sem koma af vinnumarkaði hefur verið hækkað úr 4,1 m.kr. í 6,8 m.kr. til að tryggja þessum hópi rýmri rétt til námslána. Aðgerðirnar eru hluti…Lesa meira

true

Tryggðu sigurinn í blálokin

Lið Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu náði loksins að næla sér í sigur og þrjú stig þegar það vann Berserki á Víkingsvelli í Reykjavík í gærkvöldi. Eftir fantagóða byrjun í upphafi móts þá hafa Borgnesingar átt erfitt uppdráttar og ekki unnið leik síðan þeir mættu einmitt Berserkjum í Borgarnesi í byrjun júlímánaðar. Töluvert…Lesa meira