Fréttir

true

Lætur vita af sér með kaffibollamynd á hverjum degi

Helga Ólöf Oliversdóttir, sjúkraliði á Akranesi, sá það í byrjun Covid-faraldursins síðasta vor að veiran myndi hafa afgerandi áhrif á samskipti og daglegar venjur fólks. Í stað þess að hitta vini sína daglega, til dæmis í skipulögðum gönguferðum, yrði minna úr slíkum mannlegum samskiptum. Sjálf ákvað hún að fara í sjálfskipaða sóttkví. Því fer hún…Lesa meira

true

Atvinnuleitendum gert mögulegt að fara í nám án þess að greiðslur falli niður

Atvinnuleitendum verður gert kleift að hefja nám og fá fullar atvinnuleysisbætur í eina önn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Eftir fyrstu önnina tekur Menntasjóður námsmanna við. Frítekjumark vegna skattskyldra tekna einstaklinga sem koma af vinnumarkaði hefur verið hækkað úr 4,1 m.kr. í 6,8 m.kr. til að tryggja þessum hópi rýmri rétt til námslána. Aðgerðirnar eru hluti…Lesa meira

true

Tryggðu sigurinn í blálokin

Lið Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu náði loksins að næla sér í sigur og þrjú stig þegar það vann Berserki á Víkingsvelli í Reykjavík í gærkvöldi. Eftir fantagóða byrjun í upphafi móts þá hafa Borgnesingar átt erfitt uppdráttar og ekki unnið leik síðan þeir mættu einmitt Berserkjum í Borgarnesi í byrjun júlímánaðar. Töluvert…Lesa meira

true

Stýrivextir áfram eitt prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að vextir bankans verði óbreyttir. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, sem jafnan eru kallaðir stýrivextir, verða því áfram 1%. Horfur eru á að landsframleiðsla dragist saman um 7% í ár og útlit fyrir að atvinnuleysi verði nálægt 10% í árslok. En þótt horfur fyrir seinni hluta árs…Lesa meira

true

„Ég er svona original“

Hann var útnefndur Snæfellsbæingur ársins árið 2016. Fæddur á Hellissandi og alinn upp í Rifi á Snæfellsnesi. Hann er náttúrubarn, náttúruverndarsinni og mikill sagnamaður. Þetta er hann Sæmundur Kristjánsson en blaðamaður kíkti í heimsókn til þeirra hjóna, Sæmundar og Auðar Grímsdóttur, í liðinni viku á heimili þeirra í Rifi. „Ég er svona original eins og…Lesa meira

true

„Hér verður lifandi og dýnamísk starfsemi“

– rætt við Valdísi Fjölnisdóttur, framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins Breiðar   Þróunarfélagið Breið var stofnað á Akranesi í byrjun júlí nú á liðnu sumri, þegar fulltrúar 17 fyrirtækja og stofnana skrifuðu undir samkomulag þar að lútandi. Verkefnið var að forgöngu Akraneskaupstaðar og Brims, sem höfðu frá því síðasta haust unnið saman að undirbúning að stofnun þróunarfélags um…Lesa meira

true

Ill meðferð á hundum kærð til lögreglu

Matvælastofnun hefur kært meinta illa meðferð á hundum á höfuðborgarsvæðinu til lögreglu. Við skoðun dýralækna komu í ljós áverkar og bólgur í kynfærum annars hundsins. Í tilkynningu frá Mast segir að hundarnir tveir hafi verið fjarlægðir af heimilinu og séu í umsjá lögreglu á meðan á rannsókn stendur.Lesa meira

true

Byrjað að steypa sökkla undir þjóðgarðsmiðstöð

Framkvæmdir við uppbyggingu nýrrar miðstöðvar fyrir Þjóðagarðinn Snæfellsjökli hófust í byrjun ágúst. Þjónustumiðstöðin verður reist á Hellissandi og mun hýsa fjölbreytta starfsemi þjóðgarðsins. Þegar verkið var boðið út fyrr á árinu bárust sex tilboð og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 475 milljónir króna. Húsheild ehf. átti lægsta tilboð, eða 420,7 milljónir. Samanstendur nýbyggingin af tveimur megin…Lesa meira

true

Reglur um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar

Heilbrigðisráðherra hefur, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, birt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi og hefur hún þegar tekið gildi. „Markmiðið er að raska sem minnst skólastarfi vegna COVID-19 þrátt fyrir að gætt sé að sóttvarnasjónarmiðum. Talið var nauðsynlegt að fjalla um takmarkanir á skólahaldi í sérstakri auglýsingu en…Lesa meira

true

Annar hver íbúi skrifaði undir

Alls lögðu 320 Dalamenn nafn sitt við undirskriftalista þar sem breytingum á matvöruversluninni í Búðardal úr Kjörbúð í Krambúð er mótmælt. Sömuleiðis var mótmælt þeirri verðhækkun sem breytingunum hafa fylgt og þess krafist að Kjörbúð verði opnuð í sveitarfélaginu á ný. Undirskriftalistanum ásamt áskoruninni var komið til Samkaupa í gær, mánudaginn 24. ágúst. Sem fyrr…Lesa meira