
Víða um vestanvert landið rigndi í gær eins og hellt væri úr fötu. Vatn í ám margfaldaðist að magni og veiðistaðir hurfu sjónum veiðimanna. Meðfylgjandi myndir voru teknar í gærkvöldi af Berjadalsá sem rennur úr hlíðum Akrafjalls. Þá hafði rignt mikið mestallan daginn og var þessi litla og sakleysislega árspræna sem stórfljót yfir að líta.…Lesa meira








