
Á hádegi í dag hefst árlegt elsmíðamót á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Mótið mun standa fram á sunnudag.Lesa meira

Á hádegi í dag hefst árlegt elsmíðamót á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Mótið mun standa fram á sunnudag.Lesa meira

Hlöðver Ingi Gunnarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar. Sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum síðdegis í gær, fimmtudaginn 13. ágúst. Hlöðver lauk BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2007 og MA gráðu í Evrópufræðum frá sama skóla 2012. Hann er auk þess með diplómu í kennslufræðum frá Háskólanum…Lesa meira

Víða um vestanvert landið rigndi í gær eins og hellt væri úr fötu. Vatn í ám margfaldaðist að magni og veiðistaðir hurfu sjónum veiðimanna. Meðfylgjandi myndir voru teknar í gærkvöldi af Berjadalsá sem rennur úr hlíðum Akrafjalls. Þá hafði rignt mikið mestallan daginn og var þessi litla og sakleysislega árspræna sem stórfljót yfir að líta.…Lesa meira

„Það var frekar rólegt í Gljúfuránni en við veiddum bara á fluguna, mest veiðist þarna á maðkinn,“ sagði Tómas Lorange Sigurðsson en hann var að koma úr Gljúfurá í Borgarfirði fyrir skömmu. Veiðin þar hefur verið frekar róleg í sumar. En það gæti breyst á næstu dögum. Nú hefur rignt hressilega og laxar voru að…Lesa meira

Þriðja og síðasta viðureign eldri borgara á Akranesi og Borgarbyggð í sumarpúttinu fór fram að Hamri í Borgarnesi þriðjudaginn 11. ágúst. Fyrr í sumar var keppnin haldin á Akranesi og í Nesi í Reykholtsdal. Veður var milt og kyrrt en örlítið úðarigning síðastliðinn þriðjudag. Olli það erfiðleikum fyrir ritara og voru sum skorblöðin nær óskiljanleg…Lesa meira

Dreifbýl sveitarfélög geta sótt um styrki til að mæta áskorunum sem hafa fylgt Covid-19 faraldrinum í félagsþjónustu og barnavernd vorið 2020. Í fjáraukalögum, sem samþykkt voru á Alþingi í maí, var ákveðið að veita 30 milljónum króna til að takast á við þessar áskoranir í dreifðustu byggðum landsins. Við úthlutun styrkjanna verður eingöngu horft til…Lesa meira

Stór flutningabíll fór útaf veginum við Hafnarfjall fyrr í kvöld. Hélst hann á hjólunum en djúp för eru utan vegar eftir bílinn. Vegfarendur sem leið áttu um þjóðveginn sendu Skessuhorni meðfylgjandi myndir, en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. Úrhellisrigning hefur verið á þessum slóðum í dag og vegurinn mjög blautur sem og annarsstaðar í landshlutanum.Lesa meira

Leikið verður án áhorfenda á Íslandsmótið í knattspyrnu, í það minnsta fyrst um sinn eftir að íþróttaleikir með snertingum hafa verið heimilaðir að nýju. Þetta kom fram í máli Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á upplýsingafundi almannavarna á fimmtudag. Áhorfendum verður ekki heimilað að sækja íþróttaviðburði fyrst um sinn, eins og fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis. „Það…Lesa meira

„Spilaðu formann flokks á þingi sem keppist við að koma sem flestum þingmönnum í eigin vasa – styddu málefni, settu lögbann á hneyksli og stingdu svo hina formennina í bakið! Spil fyrir fólk sem þolir ekki spillingu, nema það fái að spila með.“ Þannig hljómar athyglisverð kynning á nýju borðspili sem nú er leitað stuðnings…Lesa meira

Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað verð á þriggja laga einnota andlitsgrímum m.a. í hinum ýmsu verslunum, netverslunum, matvöruverslunum og apótekum. Úrval og framboð af andlitsgrímum er mjög misjafnt milli verslana og mikill verðmunur á slíkum andlitsgrímum. Lægsta stykkjaverðið í könnuninni var að finna í Costco, 42 kr. stk eða 2.089 kr., fyrir pakka með 50 grímum.…Lesa meira