Fréttir

true

Endaði för á umferðareyju

Óhapp varð í umferðinni á Akranesi síðdegis í gær. Fullorðinn ökumaður á ferð austur Kalmansbraut fipaðist við aksturinn. Í stað þess að stíga á hemla bílsins steig hann á eldsneytisgjöfina og ók upp á umferðareyju. Ökumaður slasaðist ekki en bíllinn var óökuhæfur og var fluttur af vettvangi með kranabíl.Lesa meira

true

Fékk átta hvolpa úr gotinu hjá Kolku og Aski

Unnsteinn Guðmundsson og Mandy Nachbar eru búsett í Grundarfirði og una hag sínum vel. Þau eiga tvo þýska veiðihunda, þau Kolku og Ask, en hundarnir eru af tegundinni German Jagterrier og voru fluttir inn frá Ítalíu. „Það eru til tvö pör af þessari tegund á landinu,“ segir Unnsteinn í stuttu spjalli við Skessuhorn. „Við Mandy…Lesa meira

true

Nýjum deildarbikar í körfunni frestað

Mótanefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að aflýsa keppni í deildarbikarnum í körfuknattleik, sem átti að hefjast í fyrsta sinn 23. ágúst næstkomandi. Þeim möguleika hefur verið velt upp að æfingar og keppni í liðsíþróttum fullorðinna geti hafist að nýju, að uppfylltum ströngum skilyrðum. Í tilkynningu á vef KKÍ kemur fram að talsverð vinna hafi verið…Lesa meira

true

Framhalds- og háskólanemar þurfa að virða eins meters regluna

Samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem tekur gildi föstudaginn 14. ágúst, verða reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um tveggja metra nálægðarmörk. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja metra og í…Lesa meira

true

Fjögur innanlandssmit í gær

Fjögur innanlandsmit Covid-19 greindust í gær, öll á höfuðborgarsvæðinu. Enginn þeirra sem greindist með veiruna var í sóttkví. Ekki hefur verið hægt að rekja smit þessara einstaklinga saman, eða til annarra þekktra smita enn sem komið er. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna nú rétt í þessu. Alls hefur því…Lesa meira

true

Garðyrkjuskóli Íslands stofnaður

Félagið Garðyrkjuskóli Íslands hefur verið stofnað. Að því stendur fagfólk í garðyrkju sem hefur flest verið eða er í forsvari fyrir hagsmunafélög greinarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Tilgangur þess er að standa að faglegri og vandraðri fræðslu á sviði garðyrkju og tengdra greina. Ætlunin er að halda félagsfund og bjóða…Lesa meira

true

„Notum bolta og leik til að búa til heilsteypta einstaklinga“

Yngri flokka starf knattspyrnuhreyfingarinnar raskaðist lítið vegna Covid-19 í sumar. Allar æfingar fóru fram og sú var reyndar einnig raunin í samkomubanninu í vor. „Þá voru æfingar í formi fjaræfinga alla virka daga. Ég held að við höfum staðið okkur mjög vel þar og er ánægður hversu vel foreldrarnir stóðu sig þar líka. Eftir samkomubannið…Lesa meira

true

Laugarhúsið við Hreppslaug heyrir nú sögunni til

Síðastliðinn mánudag var gamla laugarhúsið við Hreppslaug í Skorradal jafnað við jörðu. Lauginni var lokað fyrir gestakomum í endaðan júlí. Byrjað var á framkvæmdum í síðustu viku þegar vaskur hópur ungmennafélaga reif á tveimur kvöldstundum þakplötur, timburklæðningu af útveggjum og innréttingar. Með flokkun byggingarefnanna sparaði félagið kostnað við förgun. Útveggir hússins voru svo rifnir á…Lesa meira

true

Borgfirskar konur í stjórnunarstöður á Bifröst

Þann 1. ágúst tók Margrét Jónsdóttir Njarðvík formlega við sem rektor Háskólans á Bifröst. Margrét þekkir vel til í Borgarfirðinum, hún er ættuð frá Fljótstungu í Hvítársíðu og var alla æskuna í sveit að Húsafelli. Síðsumars flutti hún að Bifröst og aðspurð segist hún full tilhlökkunar að takast á við að halda áfram að byggja…Lesa meira

true

Ístak átti lægra boðið í breikkun á Kjalarnesi

Tilboð í fyrsta áfanga breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Aðeins tvö tilboð bárust og átti Ístak hf. lægra tilboðið, eða rúmar 2.305 milljónir króna sem er um fjórum prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 2.226 milljónir. Hærra boðið var sameiginlegt tilboð Suðurverks og Loftorku, upp á 2.587 milljónir, eða…Lesa meira